Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Freyja Þórisdóttir skrifar 18. september 2026 21:42 Donald Trump hreykir sér af því í færslunni að hafa þorað því og tekist það sem síðustu Bandaríkjaforsetar höfðu ekki kjark til þess að gera: ná yfirráðum á öryggismálum á Grænlandi. Samsett/AP/Truth Social Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann segir Danmörku og Bandaríkin hafa gert samning um Grænland. Með honum hafi Danir veitt Bandaríkjunum varanleg yfirráð yfir öryggismálum á Grænlandi til frambúðar. Þegar í stað verði hafist handa við að koma á fót töluverðri viðveru Bandaríkjahers á Grænlandi.
Í færslunni sem hann birti á miðlinum Truth Social segist hann hafa náð að vinna með ráðamönnum í Danmörku til að tryggja að Bandaríkin muni að eilífu hafa fulla getu til að gera það sem nauðsynlegt sé á Grænlandi til að tryggja öryggi Grænlands og Bandaríkjanna. Ekki eftir neinu að bíða „Þar að auki getur enginn andstæðingur Bandaríkjanna héðan í frá nokkurn tíma haft herstöð á Grænlandi,“ skrifar hann einnig í færslunni. Samningurinn uppfylli að fullu öll þau áhyggjuefni sem Bandaríkjamenn hafi haft í tengslum við málið. Skjáskot/Truth Social „Við munum þegar í stað hefja ferlið við að koma á fót mikilli hernaðarviðveru á viðkomandi svæði á Grænlandi, þar sem mörg hentug svæði eru. Við munum vinna með íbúum Grænlands að þróun og uppbyggingu,“ skrifar hann. Lausnin sé góð fyrir bæði Danmörku, Grænland, Bandaríkin og alla bandamenn landanna. Þau hlakki jafnframt til að vinna með „hinu dásamlega fólki í Danmörku og á Grænlandi“ og muni gæta landsvæðisins sem byggt og starfað verði á af mikilli alúð. Þá hefur danska forsætisráðuneytið staðfest að útlit sé fyrir að samningur milli ríkjanna verði undirritaður í næstu viku, er fram kemur í fréttavakt Berlingske. Þar er vitnað í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu um að gert sé ráð fyrir að samningurinn styrki öryggi á norðurslóðum og Norður-Atlantshafssvæðinu. Sé öllum til hagsbóta „Gert er ráð fyrir að ríkisstjórnirnar þrjár undirriti samninginn í næstu viku í tengslum við allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Þegar samningurinn hefur verið undirritaður þarf hann að fara í gegnum nauðsynlega þingmeðferð til að öðlast gildi,“ sé einnig meðal þess sem greint sé frá í fréttatilkynningunni. Þá er einnig haft eftir formanni landsstjórnar Grænlands, Jens-Frederik Nielsen, að „það sé ánægjulegt að við séum að ganga frá samningi sem tryggir og styrkir öryggi Grænlands, Danmerkur, Bandaríkjanna og vestræna bandalagsins“ og að samningurinn viðurkenni hagsmuni Grænlands og stöðu okkar í alþjóðlegu samstarfi. Það sé okkur öllum til hagsbóta. Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur hafi einnig tjáð sig um málið en hún hafi sagst sátt við að það væri útlit fyrir góðan samning fyrir Grænland, danska konungsríkið og Bandaríkin. „Samningur sem styrkir sameiginlegt öryggi okkar á norðurslóðum og Norður-Atlantshafssvæðinu og er þar með einnig góður fyrir NATO og Evrópu. Og samningur sem um leið viðurkennir fullveldi og landhelgi konungsríkisins og sjálfsákvörðunarrétt grænlensku þjóðarinnar.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Grænland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Hernaður Öryggis- og varnarmál Donald Trump Tengdar fréttir Enn besta lausnin að kaupa Grænland Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði. 5. júlí 2026 21:52 Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir. 18. september 2026 10:40 Ísland á Ameríkukorti Trumps Donald Trump Bandaríkjaforseti birti mynd af korti á samfélagsmiðlum þar sem Ísland, auk Grænlands og allrar Norður-Ameríku, er þakið fánalitum Bandaríkjanna. 7. september 2026 16:02 Viðraði óvart rassinn í Krónunni Miss Universe Iceland 2020 fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 21. ágúst og verður keppnin í beinni útsendingu hér á Vísi. 24. júlí 2020 10:00 Mest lesið Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Sjá meira
Enn besta lausnin að kaupa Grænland Að kaupa Grænland er að mati Bandaríkjamanna enn besta langtímalausnin til að mæta öryggisþörfum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta kom fram í máli ónafngreinds bandarísks embættismanns á blaðamannafundi í Tyrklandi í dag. Samningaviðræður hafa staðið yfir milli Bandaríkjanna og Danmerkur síðustu mánuði. 5. júlí 2026 21:52
Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Dönskum herþotum af gerðinni F-35 var á miðvikudaginn lent á Grænlandi í fyrsta sinn. Þar tóku flugmenn þeirra þátt í æfingum með flugmönnum frá Bandaríkjunum á F-16 og Kanada á F-18. Flugvélarnar eru gerðar út frá Keflavík um þessar mundir. 18. september 2026 10:40
Ísland á Ameríkukorti Trumps Donald Trump Bandaríkjaforseti birti mynd af korti á samfélagsmiðlum þar sem Ísland, auk Grænlands og allrar Norður-Ameríku, er þakið fánalitum Bandaríkjanna. 7. september 2026 16:02
Viðraði óvart rassinn í Krónunni Miss Universe Iceland 2020 fer fram í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ 21. ágúst og verður keppnin í beinni útsendingu hér á Vísi. 24. júlí 2020 10:00