33 mörk í tveimur leikjum: Mætti á æfingar og leiki með pabba Stefán Árni Pálsson skrifar 20. september 2026 10:17 Gunnar Róbertsson er á góðri leið með að skáka föður sínum sem handboltamaður. Vísir/anton/vilhelm Hinn ungi Gunnar Róbertsson hefur skorað 33 mörk í síðustu tveimur leikjum Vals í Olís-deildinni. Gegn Fram í þarsíðustu umferð gerði hann 17 mörk í sjö marka tapi og í síðustu umferð skoraði hann 16 mörk í öruggum sigri gegn HK.
Gunnar er fæddur árið 2008 og sonur Róberts Gunnarssonar, fyrrum landsliðsmanns í handbolta og aðstoðarþjálfara Vals í dag. Hann hefur því fylgt föður sínum eftir lengi vel í gegnum hans atvinnumannaferil. Við hittum Gunnar á Hlíðarenda á dögunum. „Ég var ekkert meira að æfa en vanalega í sumar. Var bara duglegur að æfa og lyfta en gerði ekkert sérstakt sko,“ segir Gunnar Róbertsson í samtali við Vísi. Gunnar var í nokkuð stóru hlutverki með Valsliðinu sem fór alla leið á síðasta tímabili en eftir tímabilið lögðu reynsluboltar liðsins skóna á hilluna og það var ljóst að hans hlutverk yrði enn stærra. „Það má segja að margir góðir séu farnir en svo eru líka nokkrir nýir góðir komnir þannig að kannski er reynslan aðeins minni en þetta er fínn hópur og bara lítur vel út.“ En að skora 33 mörk í tveimur handboltaleikjum er magnað afrek. En Gunnar hugsar lítið út í það. „Ég pæli ekkert mikið í þessu. Ég reyni bara að mæta og taka mína sénsa og þegar boltinn fer inn þá er þetta bara extra sætt.“ Eins og áður segir er faðir Gunnars Róbert Gunnarsson sem var landsliðsmaður og atvinnumaður í handbolta í mörg ár. Gunnar hefur því búið með fjölskyldunni út um alla Evrópu. Ekkert heyrt frá liðum erlendis frá „Maður mætti á alla leiki og alltaf þegar maður gat á æfingar með honum, ef það var ekki skóli þá mætti maður bara með honum. Það var mjög gaman. Það hefur alltaf verið draumurinn minn að verða handboltamaður og ég stefni bara á að komast eins langt og ég mögulega get, hvar það verður eða hvaða landi eða hvaða liði, það á bara eftir að koma í ljós.“ Hann segist ekki vita af áhuga frá neinum liðum erlendis frá eins og staðan er í dag en Vísir hefur heimildir fyrir því að hann sé nú þegar búinn að vekja mikla athygli í stórum deildum í Evrópu. „Það er ekkert talað við mig. Ég mæti bara á æfingar og leiki og reyni að gera mitt besta sko og sé bara hvað gerist eftir það.“ Hér að ofan má sjá viðtalið við Gunnar.
Olís-deild karla Valur Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Ísland - Króatía | Króatar þurfa kraftaverk Fótbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Konurnar komu Íslandi upp um deild í Bakgarðshlaupum Sport Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Fótbolti Aðeins ein treyja toppar treyju Jordan Körfubolti „Það rignir ekkert inn peningum“ Handbolti Glódís heldur spilunum þétt að sér: „Get ekki gefið það upp hér“ Fótbolti Fleiri fréttir Valur - Tatabánya | Stórt Evrópuverkefni á Hlíðarenda Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Sjá meira