Handbolti

Cornelia snýr aftur til Ís­lands

Sindri Sverrisson skrifar
Cornelia Hermansson veit að hverju hún gengur í Olís-deildinni.
Cornelia Hermansson veit að hverju hún gengur í Olís-deildinni. ÍBV

Sænski markvörðurinn Cornelia Hermansson hefur samið við handknattleiksdeild ÍBV til næstu tveggja ára.

Cornelia þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa varið mark Selfyssinga á árunum 2022-2025 en hún lék síðast með Kungäl í heimalandinu. 

Þessi 26 ára gamli markvörður kemur inn í sterkt lið ÍBV sem spáð var sigri í Olís-deildinni fyrir tímabilið og hefur unnið þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum. Næsti leikur liðsins er við ÍR í Breiðholti á morgun.

Ólöf Maren Bjarnadóttir hefur verið aðalmarkvörður ÍBV í fyrstu leikjum tímabilsins líkt og í úrslitaeinvíginu gegn Val síðasta vor. Hlutverk hennar stækkaði til muna þegar hin norska Amalia Frøland sleit krossband í hné í tvíframlengdum oddaleik gegn Haukum í undanúrslitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×