Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Rakel Sveinsdóttir skrifar 27. september 2026 08:02 Marín Jónsdóttir hjá Almannarómi hélt í alvörunni að hún væri lítill Harry Potter í æsku, með töfrasprota sem hefði áhrif á vindkviður og fleira. En kannski að hún töfri eftir allt saman - með hjálp gervigreindar. Því Marín nýtir hana fyrir þriðju vaktina, sem fatastílista og fleira. Vísir/Anton Brink „Ég vaknaði með strákinn okkar, fékk mér kaffi og sá fyrirsögnina á Vísi: WOW air heyrir sögunni til. Maðurinn minn var enn sofandi, á leið í flug þennan dag. Þetta var algjört áfall – við vorum bæði að missa vinnuna og tekjurnar fóru í núll á einu augabragði,“ segir Marín Jónsdóttir þegar hún rifjar upp örlagamorguninn þegar Vísir – eins og aðrir fjölmiðlar – birti fréttir um þrot WOW.
Þetta var 28. mars árið 2019, Marín nýorðin mamma en átti eftir um mánuð í fæðingarorlofi en hún og eiginmaður hennar, Björn Ingi Ásgeirsson, störfuðu þá bæði hjá WOW. Síðan þá hefur aldeilis mikið breyst. Ekki aðeins að bæst hafi við í barnahópinn eða starfsframinn þróast og blómstrað, heldur er tæknin nú hluti af daglegu lífi Marínar og fjölskyldu. „Ég bjó til gervigreindaraðstoðarmann sem sér mikið um þriðju vaktina á mínu heimili: les tölvupósta frá skólanum, leikskólanum, tómstundum og svo framvegis. Fyllir inn í sameiginlegt dagatal hjá mér og manninum mínum og passar upp á að við gleymum því ekki þegar það er bleikur dagur eða eitthvað í gangi,“ segir Marín og opinberar hér með í raun nýja kynslóð foreldra og heimilishalds. Kannski tákn um nýja tíma? Marín flutti heim frá Danmörku 15 ára og fannst fyrstu árin á fróni erfið. Fann þó ástina hjá WOW og þótt þrot félagsins hafi verið þeim mikið áfall á sínum tíma segir Marín tímann hjá WOW alltaf eiga sérstakan stað í hjarta sínu. Litli Harry Potter Marín er fædd 1991 í Vesturbænum í Reykjavík en flutti fimm ára til Danmerkur vegna sérnáms móður sinnar, Höllu Skúladóttir krabbameinslæknis. Faðir Marínar var Jón Garðar Henrýsson, myndlistarmaður. „Það er örugglega óhætt að segja að ég hafi verið pínu skrýtið barn. Ég varði miklum tíma í mýri að veiða froska, snígla og drekaflugur, ég gekk um með tálgaðan töfrasprota í beltinu og trúði því einlægt að þegar vindhviða kæmi væri ég að stjórna vindinum,“ segir Marín. Enda af þeirri kynslóð sem las auðvitað Harry Potter-bækurnar. „Ég var hálfgerður lúði,“ segir Marín og hlær að sjálfri sér. „Eitt sinn áttum við að taka upp tónlistarmyndbönd í skólanum. Bekkjarfélagarnir gerðu tónlistarmyndbönd við lög Eminem eða Britney Spears en tók ég upp eigin útgáfu af Return to Sender með Elvis Presley,“ segir Marín og bætir við: „Guð blessi þá staðreynd að samfélagsmiðlar voru ekki til á þessum tíma, það er ekki hægt að grafa þetta upp!“ Fram til tíu ára var Marín einkabarn. Systur hennar eru Sóley Hölludóttir og Ásta Jónsdóttir. Í dag býr fjölskylda hennar í Danmörku en til Íslands fluttu þau þó þegar Marín var 15 ára. „Mér fannst ótrúlega erfitt að flytja til Íslands, upplifði mig Dana og var ólík krökkunum á Íslandi,“ segir Marín um heimkomuna. „Fyrstu árin heima voru því pínu erfið. Ég talaði með hreim þótt ég hafi verið alin upp við að tala alltaf íslensku heima og las bækur á íslensku alla mína æsku. Ég talaði samt bjagað og sagði setningar sem jafnöldrum fannst hljóma skringilega og voru beinar þýðingar úr dönsku. Eins og: „Já, ég vil gjarnan gera þetta.“ Marín fór í 9. og 10. bekk í Seljaskóla, útskrifaðist sem stúdent úr Versló og þaðan lá leiðin í sálfræði í Háskóla Íslands. „Þar loks fann ég mig vel, tók mjög virkan þátt í félagslífinu, varð formaður nemendafélagsins og eignaðist vini fyrir lífstíð. Ég vissi þó við útskrift að ég ætlaði ekki að starfa sem sálfræðingur.“ Marín fór fyrst í sálfræði, en vissi samt að hún ætlaði ekki að starfa sem sálfræðingur. Fór síðan í meistaranám í tölvunarfræði en vissi að hún ætlaði ekki að starfa sem forritari. Á tímum gervigreindar er þessi bakgrunnur að sanna sig sem frábær samsetning.Vísir/Anton Brink Skemmtileg ástarsaga Marín fannst gaman að spila tölvuleiki og endaði á því að elta vin sinn sem byrjaði í tölvunarfræði í Háskólanum í Reykjavík. „Í sálfræðinni lærði ég gagnrýna hugsun, heimildarýni og svona vísindahugsun sem mér finnst stundum skorta í dag. Mig hafði lengi dreymt að kunna að forrita mína eigin tölvuleiki en vissi þó við útskrift úr tölvunarfræðinni að ég stefndi ekki að því að starfa sem forritari.“ Fjölskylda Marínar var flutt til Danmerkur aftur og Marín var því á leigumarkaði og vann samhliða námi sem flugfreyja hjá WOW air. Ástarsaga Marínar og Björns Inga er reyndar voða sæt. „Við kynnumst á námskeiði á vegum Air Europa af því að WOW var að leigja vélar og áhöfn frá þeim. Ég mun aldrei gleyma því og þetta kristallar kannski líka svolítið hvaða týpur við vorum: Ég var mætt tímanlega, sat fremst með blað og blýant og var mætt til að læra. En hann kemur of seint, í stuttermabol þótt það væri kalt úti, sest aftast, byrjar strax að halla sér í sætinu og segir við næsta mann að hann sé þunnur. Ég hugsaði bara: Þessum ætla ég að halda mér í burtu frá, ég þarf ekkert að kynnast honum frekar.“ Skemmst er frá því að segja að Marín leist ekkert á Björn Inga fyrst þegar hún sá hann á námskeiði hjá WOW. Það breyttist þó á nokkrum dögum. Synirnir þeirra heita Óliver (f. 2018) og Breki (f. 2021). Nokkrum dögum síðar hitti Marín Björn aftur. Þá á Keflavíkurflugvelli þar sem hópurinn skoðaði flugvélina sem ætlunin var að vinna í. „Þá fattaði ég bara: Vá, hann er bara allt, allt öðruvísi en ég hélt. Mér fannst svo ótrúlega gaman að tala við hann og mér leið svo vel í kringum hann. Og það sem er svo ótrúlega fyndið og skemmtilegt er að flugvélin sem við vorum að skoða fékk nafnið TF-LUV.“ Þetta var árið 2016 en synir þeirra eru Óliver (f. 2018) og Breki (f. 2021). Sem þýddi að heimilisreksturinn hjá unga parinu tók stóran kollhnís þegar WOW fór á hausinn. Um árin hjá WOW talar Marín með mikilli hlýju. „Ég var svo heppin að byrja frekar snemma að vinna hjá WOW og kynntist félaginu því á upphafstímanum líka. Krafturinn í hópnum var einstakur og hópurinn sem þarna starfaði var mjög þéttur. WOW á því alltaf mjög sérstakan stað í hjarta mínu.“ Starfsframinn fór á flug eftir fall WOW en í dag starfar Marín hjá Almannarómi þar sem hún fer fyrir milljarðaverkefninu GLÓÐ í samstarfi við ESB. Litla stelpan sem klæddist bleiku í skóla og elskaði Play Station kennir líka fólki hvernig það getur notað gervigreindina til að létta undir lífið: Til dæmis að muna eftir bleiku dögunum í skólum barnanna. Starfsframinn á flug Marín útskrifaðist með BS í tölvunarfræði vorið 2017 og fljótlega eftir það færðist hún yfir á upplýsingatæknisvið WOW þar sem hún starfaði sem verkefnastjóri. Eftir þrot WOW starfaði hún um tíma sem verkefnastjóri hjá Advania sem henni fannst afar lærdómsríkur og góður tími. Þaðan lá leiðin til GRID, fyrirtækis sem frumkvöðullinn Hjálmar Gíslason stofnaði. Þetta var bara nýsköpun fyrir allan peninginn. Ég lærði svo mikið um hugbúnaðarþróun og vandaða vörustýringu – hvernig maður á að hreyfa sig hratt, læra stanslaust nýja hluti og taka hugrakkar ákvarðanir. Teymið sem Hjálmar byggði upp var alveg einstakt.“ Marín segist enn hafa í heiðri gott ráð sem bandarískur stjórnarmaður GRID gaf henni eitt sinn. „Hann sagði við mig: Mitt ráð til þín er að muna að staldra við, líta í kringum þig og átta þig á því hverju þú ert að vera hluti af. Mér fannst þetta svo fallegt ráð og ég tileinkaði mér það virkilega. Ég var svo meðvituð um það á meðan ég var þarna að þetta yrðu ‚gömlu góðu tímarnir‘ þegar maður liti til baka,“ segir Marín og bætir við: „Og það reyndist svo rétt.“ Í lok árs 2025 hóf Marín störf hjá Almannarómi þar sem hún leiðir samstarfsverkefnið Glóð, verkefni sem var nýlega opnað í samstarfi EuroHPC og sex íslenskra stofnana: Almannarómur, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Veðurstofa Íslands, Vísindagarðar og Stofnun Árna Magnússonar. Verkefninu er ætlað að lækka þröskulda og hraða gervigreindarnýsköpun á Íslandi en Marín segir Glóð vettvang sem geti opnað gervigreindarheiminn fyrir breiðari hópi og hvatt fleiri til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Þetta sé meðal annars hægt með opnum aðgangi Glóð að öflugustu ofurtölvu Evrópu. Marín heldur námskeið og fyrirlestra fyrir vinnustaði um notkun gervigreindar og segist oft þurfa að benda fólki á að byrja á því að rýna í vandamálin, áður en það skoðar hvernig best er að nýta gervigreindina. Í leik og starfi.Vísir/Anton Brink Marín heldur líka námskeið og fyrirlestra til að kenna fólki að forrita með gervigreind og láta hugmyndir verða að veruleika. „Núna erum við í svo merkilegri stöðu að það hefur aldrei verið auðveldara að skapa það sem maður hugsar.“ Auðheyrt er á Marín að henni finnst spennandi tímar framundan. Á fyrirlestrum fyrir vinnustaði heyrir hún þó oft að fólk hafi áhuga á að kynna sér gervigreindina en viti ekki alveg hvernig það á að nota hana. „Ég segi: Byrjum frekar að hugsa hvað þig langar að leysa og sjáum svo hvernig við gerum það. Ekki byrja á tólinu, heldur byrja á vandamálinu.“ Marín nýtir gervigreindina ekki aðeins fyrir þriðju vaktina og samskipti við skóla, leikskóla og tómstundir heldur hefur hún líka hannað lausn til að kenna syninum á hljómborð eða sem fatastílista. Sonunum hefur hún líka kennt að búa til sína eigin tölvuleiki. Nýja framtíðin Að leysa úr vandamálum leiðir okkur einmitt að þessari nýju framtíð. Sem nú þegar er orðin að veruleika. Þar sem ungt fólk – og reyndar þeir eldri líka – nýtir sér gervigreindina til að leysa úr alls kyns verkefnum. Þar á meðal þriðju vaktina. „Ég nota gervigreindina til að gera vikumatseðil, nýta hráefnið sem er til heima en setja í körfu hjá Krónunni það sem þarf að kaupa,“ nefnir Marín sem dæmi. Að nýta gervigreindina til að lesa úr öllum tölvupóstum skóla og tómstunda leysti líka heilmikinn vanda sem margir foreldrar kannast við. „Þetta eru margir tölvupóstar og oft langir. Gervigreindin sér um að taka saman aðalatriðin, upplýsa okkur og skrá í sameiginlega dagatalið það sem við þurfum að vita og passa upp á.“ Eins og bleiku dagana sem minnst var á áðan. „Ég er núna að þróa aðstoðarmann til að skipuleggja fataskápinn minn og aðstoða mig við samsetningu á fötum,“ segir Marín og vísar til kvikmyndarinnar Clueless sem upphaf hugmyndarinnar. Marín er góð táknmynd nýrra tíma og hvetur fólk til að vopna okkur sjálf - og börnin okkar með forvitni, gagnrýnni hugsun og heimildarrýni. Mynd efri fv: Mæðgurnar, th; samstarfskonur hjá Glóð Almannaróms, Lilja og Anna Margrét. Marín hefur líka skoðanir á því hvernig best sé að ala upp nýjar kynslóðir sem munu ekki þekkja neitt annað en gervigreind. „Ég trúi ekki á boð og bönn en reyni þess í stað að kenna þeim ákveðna hönnunarhugsun, þannig að þeir séu meðvitaðir um að það eru þeir sem stjórna gervigreindinni,“ segir Marín og tekur dæmi: „Við forrituðum til dæmis gervigreindarkennara til að kenna syni okkar á hljómborð sem við eigum en hvorugt okkar foreldranna kann að spila á. Gervigreindarkennarinn sýnir myndrænt hvaða lykla sonur minn á að ýta á, hlustar eftir réttri nótu og sýnir síðan næsta skref. Þannig leiðir kennarinn hann gegnum hvert lag fyrir sig en sonur minn er búinn að læra nokkur lög með þessum hætti“. Marín segist líka búa til tölvuleiki með sonunum. Það sé svo vinsælt að nú séu stundum vinir að koma líka til að forrita tölvuleiki. „Við setjumst þá niður með blað og blýant, teiknum upp hugmyndirnar sem þeir eru með um tölvuleikina og forritum þá síðan frá grunni. Eldri strákurinn er byrjaður að skrifa sjálfur og getur því gefið gervigreindinni fyrirmæli á íslensku og auðvitað er vinsælt að bjóða vinum í heimsókn til að spila tölvuleiki sem hann hefur sjálfur hannað.“ Marín segir fólk auðvitað eiga að vera gagnrýnið á gervigreindina og athugult. Ekki að trúa öllu því sem hún skilar af sér og svo framvegis. „Ef við vopnum börnin okkar – og okkur sjálf – með þrennu: forvitni, gagnrýnni hugsun og heimildarýni, þá verður þetta allt í lagi. Þá stjórnum við tækninni á okkar forsendum í stað þess að hún stjórni okkur.“
Gervigreind Helgarviðtal Atvinnulífsins Tengdar fréttir „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Að rifja upp áratuginn fyrir aldamótin síðustu er ekki bara rífandi stemning: Heldur stórskemmtileg upprifjun líka. 13. september 2026 08:00 Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Það geta fæst okkar státað af því að hafa neglt nafninu okkar rækilega í íslenskar sögubækur vel fyrir fertugt. Erla Hlynsdóttir er samt ein þeirra. 19. júlí 2026 08:00 Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ „Það lifa má segja tveir aðilar í öllu,“ segir Þórmundur Bergsson með tilvísun í fjölmiðlamarkaðinn. 5. júlí 2026 08:00 Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Við höfum kynnst hjónum sem vinna saman. Vinum sem vinna saman. Systkini sem vinna saman og fjölskyldum sem vinna saman. 7. júní 2026 08:02 Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Stundum er talað um að við séum með bissness í genunum. Eða frumkvæði. Eða hæfileika til að skapa, syngja, dansa, reikna, hreyfa okkur. 31. maí 2026 08:02 Mest lesið Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Atvinnulíf Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Neytendur Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Viðskipti innlent Icelandair flutti metfjölda farþega til landsins í júlí Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Krónan frystir verð til áramóta Neytendur Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Atvinnulíf Fleiri fréttir Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
„Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Að rifja upp áratuginn fyrir aldamótin síðustu er ekki bara rífandi stemning: Heldur stórskemmtileg upprifjun líka. 13. september 2026 08:00
Gullslegið klósett Bakkavararbræðra flottast Það geta fæst okkar státað af því að hafa neglt nafninu okkar rækilega í íslenskar sögubækur vel fyrir fertugt. Erla Hlynsdóttir er samt ein þeirra. 19. júlí 2026 08:00
Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ „Það lifa má segja tveir aðilar í öllu,“ segir Þórmundur Bergsson með tilvísun í fjölmiðlamarkaðinn. 5. júlí 2026 08:00
Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Við höfum kynnst hjónum sem vinna saman. Vinum sem vinna saman. Systkini sem vinna saman og fjölskyldum sem vinna saman. 7. júní 2026 08:02
Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Stundum er talað um að við séum með bissness í genunum. Eða frumkvæði. Eða hæfileika til að skapa, syngja, dansa, reikna, hreyfa okkur. 31. maí 2026 08:02
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf