Innlent

Tveir á vinnupalli sem féll

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Lögregla er á vettvangi vinnuslyss í miðbænum.
Lögregla er á vettvangi vinnuslyss í miðbænum. Vísir/Ívar Fannar

Tilkynnt var um vinnuslys í Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur upp úr hádegi í dag. Samkvæmt lögreglu féll vinnupallur við hús.

Ríkisútvarpið greindi fyrst frá en Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við fréttastofu að tveir hafi verið á vinnupallinum þegar hann féll. 

Samkvæmt slökkviliði féllu mennirnir um fjóra til sex metra. Þeir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en eru með minniháttar áverka. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×