Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 21. september 2026 18:54 Benóný Harðarsson framkvæmdastjóri Fagfélaganna. Vísir/Arnar Talsmaður Fagfélaganna segir að farið verði fram á verulegar launahækkanir félagsmanna í kjaraviðræðum sem framundan eru í vetur, félagsmenn séu í bullandi launarýrnun samkvæmt könnun. Plan A sé þó að Samtök atvinnulífsins komi með útspil svo ekki þurfi að fara í hart og hið opinbera hækki ekki gjöld og álögur.
Þetta kom fram í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni. Benoný Harðarson framkvæmdastjóri Fagfélaganna, sem er samstarfsvettvangur RSÍ - Rafiðnaðarsambands Íslands, VM - félags vélstjóra og málmtæknimanna og MATVÍS, segist vilja sjá Samtök atvinnulífsins bregðast við svo núverandi kjarasamningur geti lafað. Verði það ekki gert muni fagfélögin sækjast eftir hækkunum „Það er alltaf plan A. Plan B er að ef að þessir aðilar, hið opinbera, fyrirtækin og þá Samtök atvinnulífsins sem semja fyrir þau, ætla ekki að gera neitt þá getum við ekkert annað gert heldur en að segja upp samningum. Það er bara þannig að hér eru stýrivextir mjög háir. Verðbólga er mjög há og við hjá stéttarfélögunum, við getum ekkert gert í þessum hlutum. En við getum samið um launahækkanir og betri kjör fyrir okkar félagsmenn. Það er eina verkfærið okkar.“ En það verður bara eins og olía á eldinn? „Við erum bara ekki sammála því. Hér er bara mjög góður hagnaður í mjög mörgum fyrirtækjum. Við horfum á það að Hagar, sem að eru, eru mjög stórir á markaði. Hagnaður þeirra er mjög góður. Við erum, við liggjum yfir ársreikningum og við getum ekki séð að mjög mörg fyrirtæki, auðvitað einhver, eða mjög mörg fyrirtæki þurfi ekki að hækka vöruverð þó að laun hækki hérna. Svo er það líka þannig að hérna er mýta um það að ef laun hækka að þá fer verðbólga af stað.“ Það er nú stór breyta í þessu öllu? „Það er samt þannig eins og hjá Högum og Festi sem reka hérna stórar matvörukeðjur eins og Krónan, Bónus, launahlutfallið er sex til sjö prósent af veltunni, það er nú ekki meira en það. Flutningar til landsins eru stærri kostnaðarbreyta hjá þessum fyrirtækjum heldur en launakostnaður.“ Þannig að þið eruð alveg í startholunum með launahækkanir? „Heldur betur, bara svo ég klári þá er það eins og staðan er núna að með því að hækka laun þá erum við að elta verðlagið. Verðlagið er farið af stað og við þurfum að hækka laun til þess að ná því og ég bara út af því að við hjá fagfélögunum, við erum búin að vera að keyra könnun núna yfir helgina, byrjuðum á fimmtudag og hún lokaðist klukkan níu í morgun, fengum frábæra svörun. Það voru rétt rúmlega 2. 200 félagsmenn sem svöruðu þessari könnun, þetta var stutt könnun með sex spurningum. Og í henni kemur fram að rétt tæplega helmingur, rétt tæplega 49 prósent félagsmanna okkar á erfiðara með að ná saman heimilisbókhaldinu núna heldur en fyrir 24 mánuðum. Og það er bara okkar verkefni að hjálpa okkar fólki að ná saman heimilisbókhaldinu. Okkar verkfæri er að gera það með launahækkunum. Um hvað mikið? Hvað eruð þið að undirbúa ykkur undir í kröfugerð? „Við höfum svo sem ekkert gefið það út og höfum viljað ræða það við Samtök atvinnulífsins. Við höfum rætt um launahækkanir, við höfum rætt um að, til þess að koma til móts við fjölskyldufólk, að fjölga frídögum út af því að við sem erum með börn í leikskólum og skólum vitum að það er oft ansi erfitt að láta til dæmis orlofið duga bara fyrir þeim frídögum sem eru þar og starfsdögum og öðru og við höfum bara verið til samtals við Samtök atvinnulífsins um það að koma með eitthvað inn í samninginn af þessum hlutum.“ Hvað erum við að tala um Benoný, talaðu bara við okkur hérna, erum við að tala um fimm prósent, tíu prósent, fimmtán prósent, bara þvert yfir línuna? „Ja, við höfum svo sem sagt það að til dæmis á þessu kjarasamningstímabili hafa almennar launahækkanir verið 10,6 prósent. Verðbólga hefur verið rétt tæplega þrettán prósent.“ Viltu elta verðbólgutöluna? „Já, eitthvað svoleiðis. Við höfum bara verið að horfa á þennan mun og það er bara þannig, svo ég vísi aftur í þessa könnun okkar hérna að rétt rúmlega sjötíu prósent okkar félagsfólks segist ekki hafa fengið launahækkun umfram almenna launahækkun á síðustu 24 mánuðum. Það segir okkur að stór hluti okkar félagsfólks, sem er millistéttin, sé bara í bullandi kaupmáttarrýrnun og það getum við illa boðið okkar félagsfólki upp á.“
Reykjavík síðdegis Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Sjá meira