Innlent

Flug­virkjar eigi að sýna vilja sinn í verki

Eiður Þór Árnason skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Vísir/Einar

Frestun verkfalls flugvirkja myndi ekki draga úr skaða heldur framlengja óvissutímabil og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta segja stjórnendur Icelandair um þá tillögu flugvirkja að fresta boðuðum verkfallsaðgerðum um sjö sólarhringa. Þær hefjast að óbreyttu á aðfaranótt miðvikudags.

„Ef trú er á að samtalið geti leitt til niðurstöðu telur Icelandair eðlilegast að Flugvirkjafélag Íslands dragi verkfallsboðunina til baka, frekar en að henni verði frestað, og að viðræður haldi áfram af fullum krafti. Icelandair lagði þannig skriflega til í morgun við FVFÍ að aðilar myndu hittast í dag með það að markmiði að ná samningi, en af slíkum fundi hefur ekki orðið,“ segir í yfirlýsingu frá stjórnendum flugfélagsins.

Félag flugvirkja segir að þreifingar hafi átt sér stað milli þeirra og Icelandair sem hafi leitt til þess að ríkissáttasemjari hafi lagt fram innanhússtillögu sem samningsaðilar hafi átt að vinna að. Félagið segist vera reiðubúið að vinna áfram með þá tillögu.

„Tjónið sem þegar er orðið næst ekki til baka og frestun um viku myndi setja sömu atburðarás í gang fyrir það tímabil og valda enn frekara tjóni,“ segir í yfirlýsingu flugfélagsins. 

Flugvirkjafélag Íslands hefur sagt að tilgangurinn með tillögunni hefði verið að gefa báðum samningsaðilum tíma til að vinna áfram með innanhústillögu ríkissáttasemjara og kanna hvort hún gæti leitt til sáttar.

Óleyfilegt að fresta verkfalli einhliða með skömmum fyrirvara

Verkfallsboðunin hefur þegar valdið verulegum skaða fyrir starfsemi Icelandair, ferðaþjónustuna, íslenskt atvinnulíf og samfélag, að sögn flugfélagsins. Það hafi gripið til umfangsmikilla aðgerða til að lágmarka tjón og auka fyrirsjáanleika fyrir farþega. Til að mynda hafi þeim verið boðið að færa bókanir sínar yfir á aðrar dagsetningar og hafi tæplega þrjú þúsund farþegar nýtt sér þann möguleika.

„Þá eru í ljósi stöðunnar merki um hægari bókanir, afbókanir og að farþegar færi sig yfir til annarra flugfélaga. Það sama á við um íslenska ferðaþjónustu þar sem hægt hefur á bókunum og afbókanir átt sér stað,“ er staðhæft í yfirlýsingu Icelandair.

Stjórnendur flugfélagsins segja að samkvæmt lögum megi ekki fresta boðuðu verkfalli einhliða með skemmri en þriggja daga fyrirvara. „Þau lög voru sett með þeim rökum að almennt væri ekki hægt að afstýra tjóni sem boðuð vinnustöðvun getur valdið með skemmri fyrirvara.“ Flugvirkjafélag Íslands hefði þannig átt möguleika á að fresta verkfallinu einhliða á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×