Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar 22. september 2026 06:32 Í dag, 22. september, er bíllausi dagurinn og jafnframt síðasti dagur evrópsku samgönguvikunnar. Af því tilefni verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu í allan dag og því kjörið að skilja einkabílinn eftir heima og prófa þá snilld sem Strætó er. Þriðjungur vill skipta um ferðamáta Einkabílinn er algengasti fararmáti íbúa á höfuðborgarsvæðinu en niðurstöður úr rannsóknarverkefninu Tilraunaborgir (Pilot Cities Project) sem nýlega voru kynntar í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur sýna að um þriðjungur þeirra sem aka til vinnu langar að skipta yfir í aðra ferðamáta. Þar skoruðu almenningssamgöngur einna hæst. Þá sýna niðurstöðurnar að langflestir búa nógu nálægt vinnustað sínum til að geta nýtt sér aðra ferðamáta en einkabílinn. Betri þjónusta Strætó Í ágúst í fyrra stórjók Strætó þjónustu sína en þá fór hlutfall íbúa sem búa innan við 400 metra frá stoppistöð með 10 mínútna tíðni úr um 18% í rúmlega 50%. Það munar um minna. Þessi aukning var hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031. Ég finn fyrir þessari þjónustuaukningu í mínu daglega lífi, en mín reynsla er sú að það er lang oftast mjög þægilegt að taka Strætó. Breyttar venjur og ávinningur strætóferða Að breyta venjum sínum tekur á og krefst staðfestu og þolinmæði. Að venja sig af því að nota einkabílinn allra sinna ferða getur verið krefjandi, sérstaklega þar sem að íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru meira á ferðinni en íbúar margra annarra borga sem við berum okkur saman við. Að taka strætó krefst þess að maður skipuleggi sig aðeins betur - en að láta einhvern annan keyra sig á milli staða, þurfa aldrei að leita af stæði, leggja sitt af mörkum til betri loftgæða, draga úr umferð á götum borgarinnar og geta notið þess að einbeita sér að einhverju allt öðru en umferðinni á sama tíma er svo innilega þess virði. Að breyta venjum sínum getur hafist með því að einfaldlega taka af skarið. Prófa og sjá hversu einfalt og þægilegt þetta er. Sjáumst í Strætó! Höfundur er varaborgarfulltrúi Viðreisnar og situr í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar