Segja aldrei jafn marga hafa stoppað stutt í „ræningjarennunni“ Oddur Ævar Gunnarsson og Smári Jökull Jónsson skrifa 22. september 2026 21:42 Rennan er landsfræg og gerði gott mót í Áramótaskaupinu siðasta. Vísir/Vilhelm Forsvarsmenn Isavia segja að aldrei hafi fleiri stoppað stutt, eða innan við fimm mínútur, í brottfararrennu við Keflavíkurflugvöll eins og eftir að gjaldtaka hófst í rennunni. Hlutfallið sé nú 97 prósent en hafi áður verið áttatíu prósent. Athugasemdir Félags íslenskra bifreiðaeigenda verði þó teknar til skoðunar og samtal opnað við félagið um málið.
Þetta kemur fram í svörum Isavia til fréttastofu. Tilefnið er könnun FÍB á fyrirkomulaginu við tíu flugstöðvum í Evrópu. Félagið segir að hvergi sé sami „fantaskapur“ sýndur og Isavia geri með rennunni, sem félagið kallar „ræningjarennuna“ og skorar á Isavia að stækka hana. Ökumenn sem eru lengur en fimm mínútur í rennunni eru rukkaðir um fimm hundruð krónur fyrir hverja mínútu. „Við á Keflavíkurflugvelli (KEF) munum fara yfir ábendingar FÍB og einnig hafa samband við fulltrúa félagsins til að opna á samtal. Varðandi gjaldtöku í rennunni svokölluðu við brottfararinnganginn að flugstöðinni á KEF þá var hún tekin upp fyrir um einu og hálfu ári,“ segir Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia í svari til fréttastofu vegna málsins. Rennan sé ætluð þeim sem þurfi að aka upp að flugstöðinni og stöðva bíl sinn þar í stutta stund til að hleypa úr farþegum og losa farangur. Rennan sé helst ætluð viðbragsaðilum eins og lögreglu, sjúkraflutningafólki og slökkviliði ef til dæmis slys verða. „Þá skipta mínútur eða jafnvel sekúndur máli og okkar hlutverk að tryggja að aðgengi um rennuna sé ekki teppt með nokkrum hætti. 1.700 bílum er ekið í gegnum rennuna á dag og er umferðin mest á álagstíma á flugvellinum. Lítið má því út af bregða til að þar verði tafir og biðraðir myndist ef bílar eru stöðvaðir of lengi eða er jafnvel lagt í rennunni.“ Áttatíu prósent stoppuðu stutt en eru nú 97 prósent Guðjón segir að athugun á notkun rennunnar yfir rúmlega mánaðar tímabil áður en breytingin var gerð hafi sýnt að áttatíu prósent bíla væru í rennunni í fimm mínútur eða skemur. Miðgildi dvalartíma hafi verið tvær og hálf mínúta, átta prósent bíla væru í rennunni í sextán til tuttugu mínútur, sem gæti valdið töfum, valdið gestum óþægindum og mögulega torveldað aðkomu viðbragsaðila. „Á grundvelli þessa var ákveðið að miða við 5 mínútur. Bent var á að gjaldfrjálst væri að leggja á P1 skammtímastæðinu við hlið rennunnar í 15 mínútur og þá var gjaldfrjáls tími á P2 skammtímastæðinu komumegin við flugstöðina lengdur í 30 mínútur.“ Hann segir að ný og stórbætt aðkoma að komusvæðinu við Keflavíkurflugvöll hafi verið tekin í notkun í sumar með nýrri innkeyrslu, yfirbygðum gönguleiðum og aukinni þjónustu fyrir farþega og þá sem sækja ættingja og vini. Þar sé frítt að leggja í þrjátíu mínútur. Þá hafi verið gerðar breytingar á skiltum í og við rennuna brottfararmegn til að tryggja sem besta upplýsingagjöf til farþega. „Eftir að gjaldtakan hófst hefur notkun á rennunni tekið breytingum. Nú stoppa ríflega 97% bíla þar í í fimm mínútur eða skemur og aðeins um 3% eru lengur en í fimm mínútur í rennunni. Varðandi mögulegar breytingar á aðkomunni að flugstöðinni þá eru framkvæmdir á vellinum byggðar á þróunaráætlun fyrir KEF sem gerð er til 25 ára í senn og uppfærð reglulega.“
Isavia Keflavíkurflugvöllur Neytendur Tengdar fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Búið er að opna nýja og bætta innkeyrslu inn á komusvæðið við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þar sem meðal annars má finna komubílastæðin eða sótt úr flugi (P2). Svokallaðri rennu hefur verið bætt við á komustæðinu og nú má leggja þar í hálftíma án gjaldtöku, samanborið við stundarfjórðung áður. 24. júlí 2026 14:28 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Fleiri fréttir Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Kostar allt að 580 þúsund Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Verja súkkulaðimyndirnar á Swiss Miss Opna seinna á Dalvegi og í Jafnaseli Ný streymisveita verði heimili íslenskrar framleiðslu Fréttamaður missti af strætónum til baka Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Sjá meira
Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Búið er að opna nýja og bætta innkeyrslu inn á komusvæðið við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli þar sem meðal annars má finna komubílastæðin eða sótt úr flugi (P2). Svokallaðri rennu hefur verið bætt við á komustæðinu og nú má leggja þar í hálftíma án gjaldtöku, samanborið við stundarfjórðung áður. 24. júlí 2026 14:28