Uppsagnir hjá BBC og verkföll möguleg Valur Páll Eiríksson skrifar 24. september 2026 14:15 Bræðurnir John og Wayne Rooney ræða málin í útsendingu BBC Sport. Martin Rickett/PA Images via Getty Images Töluverður niðurskurður á íþróttadeild breska ríkisútvarpsins, BBC, hefur vakið hörð viðbrögð í Bretlandi. Starfsandi er sagður í sögulegri lægð eftir fordæmalausar breytingar. „
Þetta er kerfisbundið niðurrif sjónvarpsíþróttafrétta hjá BBC eins og við þekkjum þær,“ hefur Daily Mail eftir innanbúðamanni hjá breska ríkisútvarpinu um málið. 41 var sagt upp hjá íþróttadeild BBC í stórum niðurskurði og því fylgja töluverðar áherslubreytingar. Fimm ný störf verða kynnt til sögunnar í staðinn en gert er ráð fyrir að breytingarnar spari BBC um 2,6 milljónir punda árlega, tæplega 420 milljónir króna. Íþróttafréttir á fréttarás BBC sem gengur allan sólarhringinn verða skornar niður samkvæmt fregnum frá Bretlandi og dregið verulega úr áherslu á sjónvarpsfréttir. Íþróttafréttamönnum hefur verið fækkað úr fimmtán í ellefu. Breytingunum fylgir áherslubreyting til framtíðar, samkvæmt breskum miðlum. Ný íþróttadeild ríkisútvarpsins einblíni sífellt meira á stutt samfélagsmiðlamyndbönd fram yfir hefðbundnar fréttir. Töluverð fjárhagsleg pressa hefur verið sett á BBC. Frekari breytinga er að vænta hjá samstæðunni, varðandi bæði framleiðslu sjónvarpsefnis og frétta, þar sem allt að tvö þúsund manns gæti verið sagt upp og stefnt að sparnaði upp á 500 milljónir punda yfir næstu tvö ár, yfir 80 milljarða króna. Um er að ræða stærsta niðurskurð hjá BBC í 15 ár. Samkvæmt breskum miðlum er starfsandi á íþróttadeild samstæðunnar við frostmark og mögulegt að gripið verði til verkfallsaðgerða vegna niðurskurðarins.
Fjölmiðlar Bretland Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Rahm myndi sætta sig við sömu refsingar og Koepka fékk „Ég er ekki Mohamed Salah“ Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu Bjóða upp á Barna Fan-Zone fyrir leikinn í Höllinni í kvöld Jake Paul lofar að hætta í hnefaleikum ef hann tapar fyrir Doumbe FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið „Ef ég mætti ráða þá væri þetta öðruvísi“ Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Dagskráin í dag: Meistaradeildarveisla í allt kvöld Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 93-97 | Grindavík á toppnum með fullt hús stiga Sigurganga Hauka heldur áfram Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Hvert sæti skipað í Laugardalshöll Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Teitur kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Sjá meira