Ísraeli fékk rautt fyrir óvenjulegt fagn Stefán Árni Pálsson skrifar 24. september 2026 20:52 Ekki mjög smekklegt fagn. Saied Abu Farchi, framherji Ísraels, fékk að líta rauða spjaldið með afar óvenjulegum hætti í landsleiknum gegn Austurríki í Þjóðadeild UEFA í kvöld.
Abu Farchi jafnaði fyrir Ísrael í 1-1 á 55. mínútu og í fagnaðarlátunum tók hann upp hornfánann, hélt á honum eins og um skotvopn væri að ræða og lék eftir því að hann væri að skjóta úr því. Fyrir vikið fékk hann sitt annað gula spjald í leiknum og þar með rautt. Abu Farchi hefur sjálfur sagt í kjölfarið að fáninn hafi öllu heldur verið meintur sem billjarðkjuði í látbragði hans fremur en skotvopn. Ísrael þurfti því að leika manni færri það sem eftir lifði leiks. Atvikið vakti mikla athygli enda afar óvenjuleg ástæða fyrir brottrekstri og sérstaklega þar sem mikið hefur verið ritað og rætt um þátttöku Ísraelsmanna í alþjóðaknattspyrnuheiminum á meðan ástandið á Gaza er eins og raun ber vitni. Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari Íra hefur til að mynda tjáð sig harðlega um þeirra þátttöku. Abu Farchi leikur með Maccabi Tel Aviv í heimalandinu. Leiknum lauk með 3-1 sigri Austurríkis. 🚨 Abu Farchi shown a red card for his celebration! Israel now down to 10 men.#UNL #AUTISRpic.twitter.com/xwHkU0YNrk— goalpostFC (@GoalpostFC) September 24, 2026 Arab Israeli equalises for Israel and gets sent off. Unbelievable. pic.twitter.com/3SHW0xIPfX— Richard Millett (@RichMillett) September 24, 2026 Uppfært: Greint var frá því að Abu Farchi hafi notað hornfánann sem vopn en hann sjálfur segir að um billjarðkjuða hafi verið að ræða. Hann hafi oft áður á ferli sínum fagnað að hætti billjarðleikmanns en fagnið hafi verið tekið út úr samhengi í þetta skiptið.
Þjóðadeild karla í fótbolta Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira