Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 25. september 2026 14:25 Jay-Z hefur gert garðinn frægann í rappinu. EPA Konan sem sakaði tónlistarmanninn Jay-Z um að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi á barnsaldri segist nú hafa logið. Hún hafi aldrei hitt rapparann.
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að MTV-tónlistarverðlaunin voru veitt árið 2000. Hún átti að hafa verið þrettán ára gömul. Báðir neituðu þeir sök og hætti hún við ákæruna í fyrra. Jay-Z og Beyoncé, tónlistarkona og eiginkona hans, kærðu þá konuna og lögfræðinga hennar. Nú hefur konan dregið fullyrðingarnar alveg til baka samkvæmt umfjöllun BBC. Þar er vísað í yfirlýsingu sem var bætt við málið á fimmtudag. „Shawn „Jay-Z“ Carter nauðgaði mér aldrei. Ég hef aldrei hitt eða talað við herra Carter. Herra Carter sýndi aldrei fram á óviðeigandi hegðun gagnvart mér,“ segir í yfirlýsingunni. „Fullyrðingar mínar um að herra Carter og herra Combs hafi nauðgað mér á meðan þriðja stjarnan horfði á eru rangar. Ekkert er til í neinum ásökunum mínum á hendur herra Carter.“ Hún geri sér grein fyrir því að falskar ásakanir hafi valdið Jay-Z gríðarlegum sársauka, þjáningu og skaða. Tekið er fram í umfjölluninni að hún segist ekki hafa fengið neina peninga frá rapparanum vegna nýjustu yfirlýsingarinnar. Málsókn Jay-Z og Beyoncé á hendur lögfræðinga konunnar heldur þó enn áfram.
Tónlist Hollywood Kynferðisofbeldi Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist Fleiri fréttir Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Sjá meira