Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar 26. september 2026 14:02 Undanfarin tæp tvö ár hef ég fylgst náið með ungum dreng og fjölskyldu hans á Eskifirði. Drengurinn greindist með taugahrörnunarsjúkdóminn RTD, afar sjaldgæfan, arfgengan sjúkdóm. Saga hans og fjölskyldunnar hefur kennt mér margt um þær áskoranir sem geta fylgt því þegar barn veikist alvarlega og greiningin er sjaldgæf. Þegar barn veikist breytist lífið hjá heilli fjölskyldu. Enn erfiðara getur verið þegar enginn veit í fyrstu hvað amar að og barnið er svo ungt að það getur ekki sjálft lýst því hvernig því líður. Foreldrar leita svara, fara á milli lækna, ótal rannsókna og reyna á sama tíma að halda utan um hversdagslífið. Greiningin og það sem tekur við Þegar greiningin loksins kemur getur henni fylgt ákveðinn léttir. Loksins er komið nafn á það sem barnið glímir við. En þá taka við nýjar spurningar. Hvað gerum við nú? Hver þekkir sjúkdóminn? Hvaða meðferð er í boði? Eru til lyf? Hvaða réttindi á barnið? Hvert eigum við að leita? Reynsla þessarar fjölskyldu sýnir líka hversu auðveldlega foreldrar verða bæði sérfræðingar og málstjórar barnsins síns. Þeir þurfa að finna út hvaða réttindi barnið á, hafa samband við ólíkar stofnanir, skipuleggja ferðir, samræma læknisheimsóknir og leita sjálfir eftir stuðningi. Þegar fjölskyldan býr fjarri höfuðborgarsvæðinu bætist fjarlægðin við. Við vitum að þegar sérhæfð þjónusta er annars vegar getur fjarlægðin frá henni verið mikil. Það er staðreynd sem við getum ekki alltaf breytt. Við getum ekki haft alla sérfræðiþjónustu á öllum stöðum á landinu. En það þýðir ekki að við eigum að sætta okkur við að búseta fólks ráði úrslitum um þjónustuna sem það fær. Ferð suður vegna læknisheimsóknar er ekki bara læknisheimsókn. Hún getur þýtt flug, gistingu, fjarveru frá vinnu og skóla og röskun á lífi allrar fjölskyldunnar. Stundum þarf fjölskyldan sjálf að púsla saman mismunandi læknatímum og þjónustu í eina ferð. Það er einmitt þess vegna sem samhæfing og öflug fjarþjónusta skipta svo miklu máli. Aðgengi að lyfjum og sérhæfðri meðferð Aðgengi að lyfjum er annar mikilvægur þáttur. Þegar um sjaldgæfa sjúkdóma er að ræða getur staðan verið flókin. Meðferðir geta verið mjög sérhæfðar, lyf dýr eða aðgengi takmarkað. Stundum er meðferðin ný og þekkingin að þróast hratt á alþjóðavettvangi. Við erum lítið land og munum ekki geta byggt upp sérþekkingu á öllum sjaldgæfum sjúkdómum hér heima. Þess vegna skiptir svo miklu máli að landsáætlunin horfi ekki aðeins til jafns aðgengis að sérhæfðum lyfjum heldur einnig til alþjóðlegs samstarfs, rannsókna, nýrrar þekkingar og nýrra meðferða. Þarna felast tækifæri. Smæð okkar þarf ekki alltaf að vera veikleiki ef við erum tilbúin að leita þekkingar út fyrir landsteinana og tryggja að hún skili sér til sjúklinga hér heima. Þess vegna fagna ég landsáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma sem Alma Möller, heilbrigðisráðherra, mælti fyrir í liðinni viku. Þar er lögð áhersla á hraðari greiningu, jafnt aðgengi að meðferð, hjálpartækjum og sérhæfðum lyfjum óháð efnahag og búsetu, öflugri Miðstöð sjaldgæfra sjúkdóma og markvissa fjarþjónustu um allt land. Ekki síður mikilvægt er að heilbrigðis-, félags- og skólaþjónusta vinni saman. Það er einmitt þetta sem skiptir fjölskyldur máliþegar barn greinist með sjaldgæfan sjúkdóm, að einhver hafi yfirsýn. Tökum utan um fjölskyldur barna með sjaldgæfa sjúkdóma Við getum ekki komið í veg fyrir að börn veikist. Við getum ekki tekið alla óvissuna frá foreldrum og systkinum. En við getum gert betur í því sem við ráðum við. Við getum tryggt að foreldri sem vakir yfir veiku barni þurfi ekki líka að vaka yfir kerfinu. Að fjölskyldan þurfi ekki sjálf að finna allar dyrnar, banka á þær og vona að hún hafi fundið þær réttu. Á bak við hverja greiningu er manneskja. Á bak við hvert veikt barn er fjölskylda, foreldrar, systkini og aðstandendur sem veikindin snerta líka. Þetta fólk þarf kerfi sem sér það, heldur utan um það og grípur það. Þess vegna skiptir þessi landsáætlun máli. Nú þurfum við að tryggja að góð markmið hennar verði að veruleika í daglegu lífi þeirra fjölskyldna sem á þeim þurfa að halda. Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eydís Ásbjörnsdóttir Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar