Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 27. september 2026 16:19 Trump forseti fagnar góðu samstarfi við Breta í málinu. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mennina fimm sem handteknir voru nærri herflugstöðinni RAF Fairford í Englandi í nótt hafa ætlað að valda „miklum skaða“ á stöðinni. Hann segir bandarísk yfirvöld hafa haft mennina undir eftirliti um nokkurt skeið og fagnar samstarfi við Breta. „
Við höfðum þá til rannsóknar. Þeir ætluðu að valda miklum skaða á stöðinni okkar og samstarfið við Breta gekk frábærlega,“ sagði Trump við fréttamenn í dag samkvæmt breska ríkisútvarpinu. „Við höfðum fylgst með þeim lengi og við náðum þeim.“ Trump sagði að bandarísk og bresk yfirvöld hefðu unnið náið saman að málinu en sagðist ekki vita nákvæmlega hvaða bresku stofnanir hefðu komið að aðgerðinni. Mennirnir fimm eru í haldi grunaðir um brot á sprengiefnalögum og undirbúning hryðjuverks. Rannsókn málsins er nú undir stjórn bresku hryðjuverkalögreglunnar. Lögreglan í Glósturskíri hafði fyrr í morgun aðeins sagt að nokkrir menn hefðu verið handteknir vegna gruns um brot á sprengiefnalögum og að sprengjusérfræðingar hersins væru að rannsaka nokkur ökutæki. Lögreglan sagði atvikið afmarkað og ekki taldi stafa hætta af því utan vettvangsins. Handteknir skammt frá flugbrautinni Breska ríkisútvarpið hefur jafnframt fengið senda eftirfarandi mynd sem sögð er sýna handtöku mannanna fimm í Whelford í nótt. Uppruni myndarinnar hefur ekki verið staðfestur en BBC Verify staðsetti hana og telur hana virðast ósvikna. Myndin var tekin um 350 metra frá aðgangi að flugbraut RAF Fairford, við svokallað hlið 6A. Þessi mynd hefur verið í dreifingu og BBC Verify hefur staðfest að hún er tekin í nágrenninu.BBC Staðurinn er aðeins um 40 metra frá þeim stað þar sem tvö ökutæki sprengjusérfræðinga sáust í nótt og um 200 metra eftir vegi frá þeim stað þar sem sprengjueyðingarvélmenni hefur sést fara á milli þriggja hvítra sendibíla. Lögreglu bárust upphaflega upplýsingar um þrjá grunsamlega sendibíla sem óku í átt að RAF Fairford skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Vopnaðir lögreglumenn handtóku fimm menn í kjölfarið. Um 85 heimili voru rýmd og um 400 metra öryggissvæði sett upp á meðan sprengjusérfræðingar rannsökuðu bílana.
Bretland Bandaríkin England Donald Trump Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira