Þakklátur Gylfi Þór byrjar í kvöld: „Núna er þetta öðruvísi“ Aron Guðmundsson skrifar 29. september 2026 17:50 Gylfi Þór SIgurðsson ræddi við Stefán Árna Pálsson í Lúxemborg núna rétt áðan. Vísir Gylfi Þór Sigurðsson segir spennuna meiri en áður gagnvart því að vera í byrjunarliði íslenska landsliðsins. Hann er þakklátur fyrir þann tíma sem hann er að upplifa núna í landsliðstreyjunni.
Gylfi Þór er í byrjunarliði Íslands sem mætir Lúxemborg í Þjóðadeild UEFA ytra í kvöld klukkan korter í sjö. Hann ræddi við Stefán Árna Pálsson, íþróttafréttamann Sýnar, núna rétt áðan. Landsliðsferill Gylfa hófst af alvöru árið 2010. Hann hefur verið máttarstólpi í liðinu yfir lengri tíma og farið á bæði stórmót Íslands til þessa. Aðspurður hvort spennan og fiðringurinn fyrir því að byrja landsleik sé jafn mikill og áður hafði Gylfi þetta að segja: „Örugglega meiri núna. Kannski ekki eins og fyrir fyrsta leikinn en eftir það held ég að spennan og þakklætið fyrir að spila fyrir íslenska landsliðið sé mjög mikið. Maður veit að maður á ekki tíu ár í viðbót eftir, maður nýtur þess meira núna að vera í byrjunarliðinu.“ Klippa: Gylfi Þór fyrir leik gegn Lúxemborg „Ekki að það hafi ekki verið skemmtilegt áður. Þetta voru skemmtilegustu tímar ferilsins þegar við vorum að komast á EM og HM en núna er þetta öðruvísi. Maður er þakklátur fyrir tímann sem maður er að upplifa núna. Maður er þakklátur fyrir hvern leik, hverja æfingu og hvern hóp. Maður veit ekki hvenær síðasti landsleikurinn verður, vonandi kemur hann ekki strax.“ Hvað þurfið þið að laga frá því á laugardaginn í jafnteflinu gegn Eistlandi? „Halda hreinu, byrja á því. Svo eru margir litlir hlutir, stoppa fyrirgjafir. Auðvitað gerist það að lið nái boltanum inn í teig, að lið skori. En eftir að hafa komist 1-0 yfir eigum við og erum með það góða leikmenn tæknilega séð að geta haldið boltanum betur, búið til aðeins fleiri góð færi til þess að klára leikinn.“ Leikur Íslands og Lúxemborgar í Þjóðadeild UEFA hefst klukkan korter í sjö og er sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Sjá meira