„Við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 29. september 2026 18:15 Lúðvík Gunnarsson annar þjálfara u21 landsliðs Íslands Guðmundur/Vísir EM draumur Íslands lifir eftir frábæran 5-1 sigur á Sviss í dag. Lúðvík Gunnarsson þjálfari Íslenska u21 landsliðsins var að vonum ánægður eftir sigurinn. „
Virkilega góður leikur hjá okkar drengjum“ sagði Lúðvík Gunnarsson annar þjálfara u21 landsliðs Íslands eftir sigurinn í dag. „Við gerðum svona nokkurn veginn það sem við lögðum upp með. Við spiluðum góðan varnarleik og eins og við töluðum um fyrir leik þá erum við með hættulega menn þarna fram á við sem geta gert ótrúlegustu hluti“ Íslenska liðið var virkilega beitt fram á við og var unun að horfa á strákana fremst leika listir sínar. „Þeir eru helvíti seigir þessir drengir og koma með mjög margt skemmtilegt að borðinu. Þeir eru ólíkir en eru með ofboðslega mikil gæði og þegar þeir sýna þessi gæði eins og þeir gerðu í dag þá er ógeðslega gaman að horfa á þá“ Íslenska liðið datt örlítið niður í leiknum en létu það þó ekki slá sig út. „Það kom þarna kafli í leiknum þar sem við duttum aðeins niður en við erum bara góðir í þeim köflum eins og staðan er akkúrat í dag. Við erum ekki að fara of langt niður og við náum að halda góðu jafnvægi áfram og svo létum við kné fylgja kviði eftir að mörkin fóru að koma inn“ „Þetta var bara ógeðslega góð frammistaða hjá strákunum og þeir eiga mikið hrós skilið“ Íslenska liðið er búið að koma sér í góða stöðu fyrir lokaleik sinn í riðlinum gegn Færeyjum. Íslenska liðið þarf sigur og vona að Sviss geri ekki mikið á móti Frökkum til að tryggja sig í umspil fyir EM. „Þegar við tókum við þessu á sínum tíma þá var þetta bara mjög einfalt í rauninni. Við ætluðum ekkert að vera litlir, við ætluðum að að keyra á þetta og fara fulla ferð“ „Þetta er búið að vera þannig núna í síðustu leikjum að það hefur verið góður stígandi í spilamennskunni. Úrslitin á móti Frakklandi í síðsta leik voru mjög góð, úrslitin í dag eru virkilega góð og við verðum að vinna leikinn á móti Færeyjum og vona að Sviss fái ekki mikið út úr leiknum gegn Frökkum þannig þetta er ekki alveg í okkar höndum annað en það að við ætlum bara að klára okkar og gera það sem við mögulega getum“ sagði Lúðvík Gunnarsson.
Landslið karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Sjá meira