Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Freyja Þórisdóttir skrifar 3. október 2026 16:53 Ingi Þórarinn Friðriksson er rekstrarstjóri Kerlingarfjalla hálendismiðstöðvarinnar (e. Highland base). Aðsend Lokað verður fyrir almennar bókanir í Hálendismiðstöðina í Kerlingarfjöllum yfir vetrarmánuðina en áfram opið fyrir hópabókanir. Rekstrarstjóri segir breytinguna vera hluta af því ferli að sjá hvað virki best fyrir staðinn sem verði mannaður í allan vetur og því starfandi allt árið um kring.
Umræða hefur myndast á samfélagsmiðlum um að engin starfsemi verði í miðstöðinni (á ensku Kerlingarfjöll Highland Base) í vetur en rekstrarstjóri segir svo ekki vera. „Við höfum verið þarna með hótelið frá 2023 og breytingin er sú að það verður lokað fyrir almennar bókanir í vetur en hins vegar verðum við opin fyrir hópa og svokölluð „buy out“ og staðurinn er mannaður allan veturinn,“ segir Ingi Þórarinn Friðriksson rekstrarstjóri hótelsins. Opin fyrir hugmyndum Þau hafi almennt verið að miða við að hópar bóki fimmtán til tuttugu herbergi. Nafn Kerlingarfjalla er sjálft dregið af 25 metra háum hraunstöpli sem sagður var steinrunnar leifar tröllskessu einnar sem reikaði um fjallgarðinn en varð að steini þegar fyrstu geislar sólarinnar náðu henni einn morguninn.Aðsend „Samt skoðum við allt og erum opin fyrir hugmyndum. Það er misjafnt hvernig ferðir eru settar upp og svoleiðis þannig að það er kannski erfitt að segja eitthvað eitt um lágmarksfjölda í hópabókunum en við skoðum allt.“ Þau séu nú þegar búin að bóka hópa í vetur og nýtt fyrirkomulag verði innleitt þann 15. nóvember en opnað verði fyrir almennar bókanir á ný þann 1. júní. Þau ætli þó að bjóða almenningi upp á jólahlaðborð fyrstu tvær helgarnar í nóvember. „Það er opið fyrir almenning og hefur verið vinsælt síðustu ár. Þetta er þriðja árið núna sem við erum með þessi jóla- eða svona aðventukvöld hjá okkur í Kerlingarfjöllum,“ útskýrir Ingi. Hálendisböðin í Kerlingarfjöllum eru opin öllum gestum frá 15. júní til 30. september. Aðgangur fylgir með gistingu á hóteli, í svefnskálum og einkaskálum allt árið.Aðsend Hótelið er sem fyrr segir við Kerlingarfjöll á miðju hálendi Íslands en þar eru einnig hálendisböð, tjaldsvæði, veitingastaður og úrval afþreyingar. Yfir háveturinn er færð yfirleitt ekki svo góð að gestir geti farið á eigin bílum. „Við erum í samstarfi við aðila með aksturinn fyrir gesti og það er engin vetrarþjónusta á þessum vegi þannig að ferðalagið upp eftir er svona hluti af ævintýrinu. Það er þá inni í pakkanum sem þú kaupir, gisting og akstur, en svo hefur þetta verið töluvert vinsælt líka hjá Íslendingum sem eru þá að ferðast á eigin ökutækjum,“ segir Ingi og tekur sem dæmi jeppa, sleða og buggybíla. Skálastemning fyrir eldri borgara Meirihluti hótelgesta sé Íslendingar en það hafi verið töluvert af erlendum hópabókunum á veturna. Það sem Íslendingarnir sæki oft í sé sagan og minningarnar sem fylgja svæðinu. Meðal þeirra sem skrifuðu ummæli undir færslu á Facebook-hópnum Bakland ferðaþjónustunnar var kona sem stakk upp á því að hótelið gæti haldið úti ferðum sem væru sérsniðnar að íslenskum eldri borgurum. „Hvað með skálastemningu fyrir Íslendinga, 60 plús sem muna Kerlingarfjöll og gamla góða Skagfjörðsskálann í Langadal, inn í Þórsmörk,“ segir í ummælinu. Kerlingarfjöll eru fjallgarður mitt á hálendi Íslands sem hefur lengi notið vinsælda meðal göngufólks.Aðsend Ingi segir það alveg klárlega vera möguleika og hvetur fólk til að setja sig í samband ef það er með hugmyndir að slíkum ferðum upp í miðstöðina. „Við höfum nú þegar tekið á móti töluverðu af eldra fólki sem er að koma upp eftir og það hafa verið fastar ferðir á vorin og sérstaklega þá frá fólki af svæðinu á Suðurlandi,“ segir hann og ítrekar „en við erum klárlega bara til í að skoða allt og okkur finnst náttúrulega frábært að fá íslenska hópa. Af því að fólki þykir vænt um staðinn og við finnum það mjög vel eftir að við hérna opnuðum nýtt hótel. Þeim finnst gaman að koma og sjá þetta.“ Betrumbæta þjónustuna Líkt og fyrr segir opnaði hótelið árið 2023 og segir Ingi breytinguna á fyrirkomulagi í vetur vera skref í því að gera staðinn betri og betri. „Þetta er í rauninni hluti af þeirri vegferð að við erum svona að prófa okkur áfram og sjá hvað virkar best fyrir staðinn, af því að við viljum klárlega hafa þennan stað aðgengilegan fyrir fólk,“ segir Ingi. Aðspurður hvort umhverfið sem blasi við ferðaþjónustu hafi reynst þeim á hótelinu erfitt segir Ingi það svo vera en það eigi líklega við um alla sem starfi í geiranum hérlendis. „Eðlilega hefur það áhrif, gerir það held ég á alla ferðaþjónustuna, hvort sem það erum við eða einhverjir aðrir sem tengjast henni. Hins vegar er þetta bara hluti af okkar vegferð með Kerlingarfjöll, að svona prófa okkur áfram og veturnir eru náttúrulega ákveðin áskorun í Kerlingarfjöllum eins og gefur að skilja og við erum að reyna að finna út hvað virkar best,“ segir Ingi og bætir við: „Við erum auðvitað með staðinn mannaðan allt árið.“
Neytendur Hótel á Íslandi Ferðalög Ferðaþjónusta Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Sjá meira