Innlent

Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs

Eiður Þór Árnason skrifar
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Slysavarnafélagið Landsbjörg. Vilhelm Gunnarsson

Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.

Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í samtali við Vísi en RÚV greindi fyrst frá. Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út korter í tólf, að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar.

Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um atvikið og gat fulltrúi lögreglunnar á Austurlandi ekki veitt upplýsingar um stöðuna á þessu stigi. 

Fréttin er í vinnslu og verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×