Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Íþróttadeild Sýnar skrifar 3. október 2026 18:27 Fyrirliðinn og framherjinn Orri Steinn Óskarsson fór mikinn í dag. Vísir/Anton Brink Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson báru af í 3-0 sigri Íslands á Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta. Sá fyrrnefndi brenndi þó af vítaspyrnu undir lok leiks og náði því ekki að fullkomna þrennuna.
Orri Steinn kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik eftir undirbúning Hákons Arnar en annars var lítið að frétta sóknarlega. Mikael Anderson lagði upp annað mark Orra Steins, aftur eftir góðan undirbúning Hákons Arnar. Framherjanum og fyrirliðanum brást svo bogalistin á vítapunktinum undir lok leiks þegar Daniel Naumov sá við honum og varði vel. Það kom ekki að sök þar sem bakvörðurinn Mikael Egill Ellertsson, sem var þá kominn á vænginn, í blálok venjulegs leiktíma. Hákon Rafn Valdimarsson, markvörður [7] Varði það sem á markið kom og var almennt öruggur í sínum aðgerðum. Var eflaust orðið heldur kalt í fyrri hálfleik þar sem hann var áhorfandi fyrsta hálftímann eða svo. Mikael Anderson, hægri bakvörður [7] Ekki hans uppáhaldsstaða og það sást lungann úr leiknum. Gerði hins vegar vel í öðru marki Íslands þegar hann átti kunnuglegt hlaup hægra megin í teig Búlgaríu og nældi sér í stoðsendingu. Aron Einar Gunnarsson, miðvörður [4] Átti misheppnaða tæklingu strax á 1. mínútu og var almennt skrefi á eftir. Segir sitt að hann hafi verið tekinn af velli í hálfleik þó að tveir af fjórum í varnarlínu Íslands væru á gulu spjaldi á þeim tímapunkti. Hörður Björgvin Magnússon, miðvörður [7] Fékk gult spjald snemma leiks en átti fínan leik. Góður í loftinu og með góðar spyrnur fram völlinn. Gefur íslenska liðinu mikið að hafa hann í standi. Mikael Egill Ellertsson, vinstri bakvörður [8] Fékk gult fyrir litlar sakir en hefði mátt vera klínískari þegar komið var ofarlega á völlinn. Allavega framan af leik. Var færður á vænginn undir lok leiks og skoraði þriðja mark Íslands með góðu hlaupi og fínni afgreiðslu. Mögulega er hann betri á vængnum í alþjóðabolta. Ísak Bergmann Jóhannesson, miðjumaður [7] Gerði sitt til að stýra flæði leiksins og láta í sér heyra. Er hægt og rólega að taka yfir sem lykilmaður á miðjunni og þegar kemur að því að tengja vörn við miðju. Sýndi kænsku sína og gerði frábærlega í fyrsta marki Íslands þegar hann lét boltann fara áfram á Orra. Andri Fannar Baldursson, miðjumaður [7] Átti fyrsta skot Íslands á markið. Kallaði fram fína Youtube-vörslu hjá markverði gestanna. Hann og Ísak Bergmann ágætis teymi á miðjunni fyrsta klukkutímann eða svo í dag. Arnór Sigurðsson, hægri vængmaður [5] Kom mikið í hálfsvæðið í uppspili og fékk í raun fyrsta alvöru færi Íslands þegar Hákon Arnar fann hann í hlaupinu utan á vörnina. Ákvað þá að gefa hann út teig frekar en að skjóta. Annars kom lítið út úr Arnóri á hægri vængnum og var hann tekinn af velli í hálfleik. Jón Dagur Þorsteinsson, vinstri vængmaður [7] Sótti gult spjald á hægri bakvörð gestanna en hefði mátt láta téðan hægri bakvörð hafa meira fyrir hlutunum í fyrri hálfleik. Var færður yfir á hægri vænginn í hálfleik en sú staða virðist engan veginn henta hæfileikum hans. Hákon Arnar Haraldsson, framherji [8] Þrír leikir, þrjár mismunandi stöður en alltaf er Hákon Arnar maðurinn sem lætur hlutina tikka. Lagði upp fyrsta mark leiksins með frábærri sendingu og hafði verið viðloðinn nær allar sóknaraðgerðir Íslands fram að því. Hefði mátt sleppa að gefa gestunum færi í lok fyrri hálfleiks. Orri Steinn Óskarsson, framherji [9] Kom Íslandi yfir með góðri afgreiðslu seint í fyrri hálfleik. Hafði ekki haft úr miklu að moða fram af því. Bætti við öðru marki í síðari hálfleik en brenndi af vítaspyrnu þegar hann gat tryggt þrennuna. Lagði upp þriðja mark Íslands undir lok venjulegs leiktíma. Varamenn Andri Lucas Guðjohnsen [5] kom inn fyrir Arnór Sigurðsson í hálfleik. Gerði lítið á sínum 45 mínútum í dag. Daníel Leó Grétarsson [7] kom inn fyrir Aron Einar í hálfleik. Fín innkoma og hjálpaði Íslandi að halda hreinu. Þurfti að hafa fyrir hlutunum þegar Búlgaría setti íslenska liðið undir smá pressu í stöðunni 2-0. Gylfi Þór Sigurðsson [6] kom inn á fyrir Andra Fannar á 62. mínútu. Gerði ekki mikið og meiddist lítillega undir lok leiks. Vonandi ekkert alvarlegt. Guðlaugur Victor Pálsson [6] kom inn fyrir Jón Dag á 62. mínútu. Gerði sitt. Logi Tómasson kom inn fyrir Hákon Arnar á 82. mínútu. Spilaði of lítið til að fá einkunn.
Fótbolti Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Ísland er komið með sjö stig í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir 3-0 sigur á Búlgaríu á Laugardalsvelli. Mörkin þrjú sýndu þau einstaklingsgæði sem íslenska liðið býr yfir en frammistaðan í heild var ekki upp á marga fiska gegn annars slökum mótherja. 3. október 2026 14:32 Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Orri Steinn Óskarsson var í ham í 3-0 sigri Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi. 3. október 2026 17:33 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Ísland er komið með sjö stig í C-deild Þjóðadeildarinnar eftir 3-0 sigur á Búlgaríu á Laugardalsvelli. Mörkin þrjú sýndu þau einstaklingsgæði sem íslenska liðið býr yfir en frammistaðan í heild var ekki upp á marga fiska gegn annars slökum mótherja. 3. október 2026 14:32
Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu Orri Steinn Óskarsson var í ham í 3-0 sigri Íslands gegn Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi. 3. október 2026 17:33