Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Valur Páll Eiríksson skrifar 3. október 2026 21:31 Hörður Björgvin spilaði 90 mínútur í dag og skilaði sínu. Vísir/Anton Brink Hörður Björgvin Magnússon spilaði allar 90 mínúturnar í hjarta varnar Íslands í 3-0 sigri á Búlgaríu í Þjóðadeild karla í fótbolta í dag. Hann naut sín vel í bláu treyjunni á Laugardalsvelli, þrátt fyrir aðstæður. „
Þetta var náttúrulega bara erfiður leikur að spila með vind og rigningu en með fullt af fólki í stúkunni sem hjálpaði okkur í þessar 90 mínútur og þetta var bara karaktersigur. Ég náttúrulega hefði viljað fá vítið inn líka en, sigur er sigur og við tökum því,“ segir Hörður Björgvin við Sýn Sport eftir leik. Klippa: Hörður sáttur eftir 3-0 sigur Búlgarska liðið er ekki upp á marga fiska og eftir smá brölt í byrjun leiks tókst strákunum okkar að sýna getumuninn og sigurinn hefði getað orðið stærri. „Já, við höfum mikla trú á okkur og þegar við spilum alvöru fótbolta þá eigum við í roð í öll lið,“ segir Hörður sem fagnaði því að byrja leikinn. „Það er náttúrulega bara gaman alltaf að koma í landsliðið og spila leiki á Íslandi. Ég er að bara kátur með sigurinn og gleði að vera á Íslandi.“ Það tók sinn tíma fyrir íslenska liðið á ná dampi á síðasta þriðjungi og finna opnanir. Það slaknaði um eftir fyrsta markið. „Já, já, þeir voru snaggaralegir í byrjun þannig að við áttum smá erfitt með þá í fyrri hálfleik en síðan þegar fyrsta markið kemur þá náum við að brjóta aðeins niður. Síðan í seinni hálfleik þá byrjuðum við á móti vindi þannig að við vissum að við gátum spilað aðeins bak við línuna þá og valdið smá usla þar. Við fylgdum bara plani og það gekk upp í dag,“ segir Hörður Björgvin sem átti hokkístoðsendingu í fyrsta markinu er hann fann Hákon Arnar í svæði rétt utan teigs. Góð sending hjá þér líka bara sem að skapar fyrsta markið, að finna Hákon í svæði sem býr það til. „Já, það er gaman að heyra þetta frá þér að maður á einhvern heiður í þessu fyrsta marki,“ segir Hörður glaður. „En jú, jú, ég er sáttur bara að ég gat hjálpað liðinu að það bara gefur mér helling líka.“ Hörður Björgvin var að byrja fyrsta leikinn í yfirstandandi glugga. Hvernig lítur hann á sitt hlutverk? „Bara eins og hver annar leikmaður í þessu liði. Þetta eru fjórir leikir, menn þurfa að hvíla á milli líka. Það er bara maður í manns stað. Og við erum með það gott lið að sá sem kemur inn, hann mun skila sínu.“ Tveir sigrar í röð núna sem að hefur ekki gerst í einhvern tíma hjá íslenska liðinu. Á ekki að bæta við þeim þriðja á þriðjudaginn? „Jú, það væri gaman, það væri gaman. Það er náttúrulega úrslitaleikur núna á þriðjudaginn á móti hérna Eistum þannig að ef við vinnum það þá lítur þetta helvíti vel út,“ segir Hörður Björgvin.
Þjóðadeild karla í fótbolta Landslið karla í fótbolta Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira