Innlent

Sprengi­sandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þau ræða málin í Sprengisandi.
Þau ræða málin í Sprengisandi. Vísir

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Páll Magnússon þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni.

Fyrst koma þingmennirnir María Rut Kristinsdóttir frá Viðreisn og Snorri Másson frá Miðflokkinum til að ræða þar sem er efst á baugi í pólitíkinni.

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, mætir þar á eftir til að ræða nýstárlega útreikninga sem hún lét gera á áhrifum fjárlagafrumvarpsins á afkomu venjulegrar fjölskyldu.

Þar á eftir koma tveir bæjarstjórar Sjálfstæðisflokksins, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs og Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja. Þær munu ræða aðgerðir sem ráðist var í í bæjarfélögunum til að bregðast við hrakandi árangri grunnskólabarna. Um er að ræða verkefnið Kveikjum neistann.

Að lokum kemur Valgerður Rúnarsdóttir, tímabundinn yfirlæknir á Vogi, til að ræða stöðu mála hvað varðar starfsemi SÁÁ síðustu tvo mánuðina.

Þátturinn er á Bylgjunni alla sunnudaga frá klukkan tíu til tólf en hann er einnig að finna hér á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×