Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Agnar Már Másson skrifar 4. október 2026 19:00 Rashad al-Alimi, forseti Jemen. Getty Forseti Jemen segist ætla að ráðast í umfangsmiklar hernaðaraðgerðir til að ná aftur öllu því landsvæði sem uppreisnarmenn Húta hafa lagt undir sig á síðustu árum. Sádar, sem eru helstu stuðningsmenn jemensku ríkisstjórnarinnar, hafa að undanförnu staðið í undirbúningi fyrir stórsókn gegn Hútum.
Þetta gerist í framhaldi af átökum sem geisað hafa undanfarna daga á milli Húta, sem eru studdir af klerkastjórninni í Íran, og alþjóðlega viðurkenndra stjórnvalda í Jemen, sem njóta stuðnings frá stjórnvöldum í Sádí-Arabíu. Hútar stjórna í dag stórum hluta Jemen og þar á meðal höfuðborginni Sana en þeir sögðust í dag hafa gert árás á byggingar í eigu sádí-arabíska olíufélagsins Aramco. Sögðust þeir þar með hafa verið að bregðast við meintum árásum ríkisstjórnarinnar, sem hefði gert fimmtíu árásir á yfir tólf klukkustunda skeið. Sádar hafa ekki tjáð sig um málið en þeir hafa stutt alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen gegn Hútum um árabil og hófu að aðstoða ríkisstjórn Jemen árið 2015. Þá leiddu Sádar bandalag arabaríkja sem kom ríkisstjórninni til aðstoðar eftir að Hútar ráku sveitir ríkisstjórnarinnar frá Sanaa. Gróflega það svæði sem Hútar hafa lagt undir sig í Jemen. Heimild: BBC.Datawrapper Í síðasta mánuði tókst Hútum að leggja undir sig vestanverða strandlengju Jemen og þar á meðal ná stjórn á Bab el-Mandab-sundi sem er mikilvæg siglingarleið fyrir olíuflutninga. „Í dag tilkynni ég að hernaðaraðgerðir hefjist til að ná aftur því landsvæði lýðveldisins og stækka við valdasvæði ríkisins og stofnana þess þvert yfir allt landsvæði þjóðarinnar,“ lýsti Rashad al-Alimi, forseti Jemen, því yfir í sjónvarpsávarpi til þjóðarinnar. Hafa umkringt Taiz Höfuðborgin Sana hefur sætt linnulausum árásum þar sem stjórnarherinn hefur reynt að draga úr hernaðarmætti uppreisnarmannanna. Breska ríkisútvarpið hefur eftir heimildum að Hútar hafi að undanförnu náð fram í Jemen. Síðustu vikur hafa helstu bardagar átt sér stað í kringum borgina Taiz. Hún hefur verið undir stjórn ríkisstjórnarinnar en í dag tókst Hútum að skera á flutningaleið milli Tais og borgarinnar Aden, sem hefur gegnt hlutverki höfuðborgar landsins frá því að Hútar lögðu undir sig Sana. AFP hefur eftir þremur heimildarmönnum í hernum að Hútar hafi nú stjórn á svæðinu í kringum Taiz og flutningaleiðinni til Aden. Þeir hafi þá svo gott sem umkringt Taiz. „[Hútar] hafa náð því hernaðarmarkmiði að einangra Taiz frá Aden, þrátt fyrir að hafa ekki náð fullri stjórn á borginni,“ hefur AFP eftir Farea Al-Muslimi, sérfræðingi hjá hugveitunni Catham House. Ólíklegt þykir að al-Alimi forseti hefði tekið svo afdráttarlaust til orða í ávarpi sínu í dag án samþykkis frá ríkisstjórn Sádi-Arabíu enda eru Sádar mikilvægustu bandamenn ríkisstjórnarinnar í Jemen. Með sádí-arabíska olíu í sigtinu Sádar hafa að undanförnu setið undir linnulausum árásum frá Hútum, sem hafa haft olíuiðnað Sáda í sigtinu enda er hann talinn lífæð efnahagskerfisins þar í landi. BBC hefur eftir Yahya Saree, talsmanni Húta, að Hútar hafi skotið eldflaugum og drónum að starfstöðvum Aramco í Riyad, höfuðborg Sádí-Arabíu, og einnig að Kúraís í austurhluta landsins, þar sem mikið er um olíu. Skæð borgarastyrjöld stóð yfir um langt skeið í Jemen en fjögurra ára vopnahlé liðaðist í sundur í sumar og hafa átökin aukist töluvert síðan þá. Hútar hófu í sumar árásir á olíuvinnsluinnviði og olíuflutningaskip Sádi-Arabíu með það að markmiði að koma í veg fyrir flutninga Sáda á olíu um Rauðahaf. Hútar njóta stuðnings Íransstjórnar, en sádi-arabíski herinn, sem styður jemensku ríkisstjórnina, hefur staðið í átökum við uppreisnarmennina síðustu vikur.Vísir/AFP Landvinningar Húta við Rauðahaf hafa gert þeim mun auðveldara að takmarka siglingar um svæðið, sem var orðin helsta útflutningsleið Sáda fyrir olíuafurðir vegna takmarkana á siglingum um Hormússund. Fyrir helgi greindi Reuters frá því með vísan í heimildir að Sádar væru að undirbúa stórsókn gegn Hútum. Verið er að skoða tvær leiðir sem Jemenum og Sádum gæti tekist að ná aftur landsvæði sínu til baka. Önnur þeirra snýst um að hefja umfangsmikla sókn gegn Hútum á breiðri víglínu í Jemen en hin um að hefja beittari sókn og takmarkaðri að munni Rauðahafs. Hútar eru nú meðal helstu bandamanna klerkastjórnarinnar í Íran eftir átök Ísraela við Hezbollah í Líbanon og Hamas á Gaza en síðan þá hefur dregið verulega úr getu beggja samtaka.
Jemen Hernaður Sádi-Arabía Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Sjá meira