Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Agnar Már Másson skrifar 4. október 2026 20:51 Hótel Tjarnir er starfrækt í gula húsinu lengst til hægri á myndinni. Í hinum gulu húsunum er Stórutjarnarskóli. Þingeyjarsveit Börn í 9.–10. bekk í Stórutjarnarskóla í Þingeyjarsveit voru í kennslustund þegar þau sáu út um gluggann nakinn hótelgest á Hótel Tjörnum í næsta húsi. Sveitarstjórn hefur brugðist við en vonast til að endanleg lausn finnist í málinu áður en starfsemi hótelsins hefst á ný í vor. „[
Hinn 8. september] varð það atvik í kennslustund hjá mér að nakinn fullorðinn maður var inni á hótelherbergi í beinni sjónlínu við kennslustofuna. Nemendur mínir urðu þar með vitni að nekt fullorðins hótelgests í miðri kennslustund,“ segir í bréfi sem Sigríður Árdal, umsjónarkennari 9. - 10. bekkjar í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit, sendi sveitarstjóra og sveitarstjórn Þingeyjarsveitar í síðasta mánuði. Málið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnarinnar í síðustu viku en í kjölfar ábendingarinnar hafði sviðsstjóra fjölskyldusviðs verið falið að framkvæma tafarlausar aðgerðir innanhúss í Stórutjarnaskóla til að koma til móts við athugasemdir kennarans. Sigríður segir atvikið hafa truflað kennslu og sett börnin í aðstæður sem þau eigi ekki að þurfa að upplifa í skólanum, en tekur þó fram að hún sé ekki að halda því fram að hótelhesturinn hafi vitað að börn sæju til hans eða að háttsemi hans hafi verið vísvitandi. Kennarinn krafði sveitarfélagið svara við því hvernig það samræmdist skyldum þess að reka skólastarf þar sem ókunnugir fullorðnir hótelgestir hefðu beina sjónlínu inn í kennslustofur barna og börnin hefðu að sama skapi beina sjónlínu inn í einkarými hótelgestanna. „Þetta mál,“ skrifar kennarinn, „verður ekki afgreitt með því einu að um óheppilegt tilvik hafi verið að ræða. Atvikið var fyrirsjáanleg afleiðing af því fyrirkomulagi að hótelherbergi og kennslustofur barna séu í beinni sjónlínu hvort við annað. Nú þegar áhættan af þessu fyrirkomulagi hefur raungerst ber sveitarfélaginu að bregðast við.“ Í fundargerð sveitarstjórnar segir að samkvæmt upplýsingum frá sviðsstjóra hafi verið brugðist við athugasemdum í samráði við skólastjóra. Einnig hafi greinargerð borist frá skólastjóra Stórutjarnaskóla þar sem farið væri yfir það sem gert hafi verið til að koma til móts við athugasemdir foreldra. Tjarnir hf., sem er að 22 prósentum í eigu sveitarfélagsins, rekur hótelbygginguna við hliðina á Stórutjarnaskóla. Hótelið er yfirleitt aðeins opið yfir sumartímann og af bókunarsíðum að dæma virðist hótelið nú hafa lokað fyrir almennar bókanir. Í fundargerð sveitarstjórnar er bókað að mikilvægt sé „að endanleg lausn liggi fyrir áður en starfsemi hótelsins hefst á ný á vordögum“.
Þingeyjarsveit Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Öryggi á ferðamannastöðum Ferðaþjónusta Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Fleiri fréttir Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga Sjá meira