Fótbolti

Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja ég elska þig“

Aron Guðmundsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson er tilbúinn að leggja allt í sölurnar fyrir íslenska landsliðið.
Gylfi Þór Sigurðsson er tilbúinn að leggja allt í sölurnar fyrir íslenska landsliðið. vísir/Anton

Vísir heilsar frá Tallinn í dag þar sem fram undan er leikur Ís­lands gegn heima­mönnum í lands­liði Eist­lands í Þjóða­deildinni í fót­bolta á morgun. Ís­lenska lands­liðið er á góðu skriði og spenna að byggjast upp. Staðan á Gylfa Þór Sigurðs­syni og staða Arnars Gunn­laugs­sonar var til um­ræðu í þætti dagsins.

Aron Guðmundsson, íþróttafréttamaður Sýnar, ræddi við sérfræðingana Guðmund Benediktsson og Kjartan Henry Finnbogason um komandi leik, stöðuna á landsliðinu sem hefur tengt saman sigra í keppnisleikjum í fyrsta sinn frá 2019 og ótrúlegan vilja sem laskaður Gylfi Þór Sigurðsson hefur sýnt í aðdraganda leiksins.

Klippa: Strákarnir ferskir í Tallinn: „Brynja ég elska þig“

„Gylfi hefur sýnt það og sannað í þessum glugga að hann hefur enn ýmislegt fram að færa í íslenska landsliðinu,“ sagði Guðmundur Benediktsson í þætti dagsins. „Hann er búinn að vera meiddur. Ég held hann hafi rifbeinsbrotnað gegn KR í fyrri leik Víkinga gegn KR fyrir ekki svo löngu síðan. Hann hefur verið að spila með brynju. Brynja ég elska þig.“

Eistar hafa komið nokkuð á óvart í riðli Íslands til þessa og ljóst er að sigurliðið á morgun mun verma toppsæti riðilsins fram að næsta landsliðsverkefni. Sigur Íslands færi langt með að tryggja strákunum okkar efsta sætið og farmiða í B-deildina.

Þátt dagsins má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni. Vísir færir ykkur öll helstu tíðindi af íslenska landsliðinu í Eistlandi. Við verðum með beina útsendingu frá blaðamannafundi liðsins klukkan korter yfir tvö seinna í dag.

Landsleikur Eistlands og Íslands í Þjóðadeild UEFA hefst klukkan korter í sjö annað kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×