Enski boltinn

Bruno settur á bekkinn

Andri Broddason skrifar
Bruno Fernandes byrjar fyrsta leikinn sinn á bekknum í meira en heilt ár í ensku úrvalsdeildinni.
Bruno Fernandes byrjar fyrsta leikinn sinn á bekknum í meira en heilt ár í ensku úrvalsdeildinni. EPA/ADAM

Bruno Fernandes er ekki í byrjunarliði Manchester United þegar liðið tekur á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í dag. Fernandes gagnrýndi þjálfarateymi liðsins eftir að Manchester United tapaði 4-1 gegn Como í Meistaradeild Evrópu í vikunni.

Mikil umræða hefur verið um gengi Manchester United upp á síðkastið þar sem liðið hefur aðeins unnið tvo leiki á tímabilinu. Þegar sjö umferðir eru búnar er liðið með sjö stig í fimmtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Ekki er víst hvort að Fernandes muni enn vera fyrirliði liðsins eftir gagnrýni hans á þjálfarateymið en ljóst er að þjálfarstóll Michael Carrick, þjálfara liðsins, er heitur. Ýmsir stuðningsmenn gera ráð fyrir því að ef liðið fær ekki góð úrslit gegn Bournemouth þá yrði hann rekinn.

Bournemouth er fyrir neðan Manchester United í deildinni með aðeins sex stig eftir sjö umferðir en liðið kemur fullt sjálfstrausts í leikinn. Bournemouth mætti ítalska stórliðinu AC Milan í Evrópudeildinni fyrr í vikunni þar sem enska liðið vann 3-0.

Bruno Fernandes hefur ekki oft byrjað leiki á bekknum síðan hann kom til Manchester United en síðasti leikur í ensku úrvalsdeildinni sem hann byrjaði á bekknum var gegn Brentford 4. maí 2025.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×