Mun Conte taka við Manchester United? Andri Broddason skrifar 5. október 2026 19:45 Antonio Conte hefur unnið mikið sem þjálfari. Ivan Romano/Getty Images Antonio Conte hefur þjálfað mörg af bestu félögum heims og hefur náð miklum árangri með þeim. Hann er þekktur fyrir að stoppa ekki lengi hjá félögum en hann segist hafa augastað á að ganga til félags sem er með langa sögu af því að vinna titla.
Í viðtali við The Athletic er Conte spurður að því hvað sé næst á döfinni hjá honum. Hann hefur ekki þjálfað síðan hann fór frá Napoli eftir síðasta tímabil þrátt fyrir að hafa endað í öðru sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Conte segist hafa mikinn áhuga á því að þjálfa á Englandi því fjármagn félaga þar er mun meira en í öðrum deildum í Evrópu. Það er þó ekki nóg að eiga fullt af peningum heldur þarf að eyða þeim á réttan hátt. „Það þarf að fara varlega með hvernig peningnum er eytt. Þess vegna er mikilvægt að hafa skýra sýn og vinna markvisst að henni. Það er ekkert mál að eyða pening en þú verður að gera það á viturlegan hátt,“ sagði Conte þegar hann var spurður hvort hann hefði áhuga á að þjálfa aftur á Englandi. Misjafnt gengi á Englandi Áður hefur hann þjálfað tvö lið á Englandi en hann eyddi tveimur árum sem þjálfari Chelsea og tveimur árum sem þjálfari Tottenham. Þegar hann var hjá Chelsea vann hann ensku úrvalsdeildina á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari liðsins. Hann náði ekki að endurtaka sama árangur hjá Tottenham en Conte sagði að menningin innan félagsins hefði ekki verið nógu góð. Hann hrósaði PSG og Arsenal fyrir árangurinn sinn og segir hann koma að hluta til vegna þess að félagið treystir framtíðarsýn þjálfarans. Ef hún er góð og það er fjárfest í henni til langs tíma þá er líklegt að það leiði til árangurs. Manchester United næsti áfangastaður? Það sem heillar Conte mest er félag með ríka sögu þar sem markmiðið er að koma félaginu aftur á sigurbraut þar sem liðið var áður fyrr. Þrátt fyrir að liðið hafi aldrei verið nefnt í viðtalinu passar lýsing Conte mjög vel við Manchester United en Conte hefur verið orðaður við liðið eftir vonbrigðabyrjun á tímabilinu. Michael Carrick tók við liðinu á síðasta tímabili og stóð sig það vel að hann fékk áframhaldandi samning. Hann hefur þó ekki náð að halda áfram góðu gengi og miðað við sögu félagsins síðustu ár þá hefur það litla þolinmæði fyrir slæmu gengi þjálfara. Conte segist þrífast undir svoleiðis álagi og virðist vera tilbúinn að taka við sem þjálfari rauðu djöflanna.
Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Heimir farinn frá Fylki Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Tré felld vegna Þjóðarhallar Slagur um starfið hjá Blikum og verður enginn í vörn hjá KR? Sjá meira