Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Sindri Sverrisson skrifar 6. október 2026 08:01 Leikmaður Ísraels á að hafa hrækt á þjálfara Írlands þegar flautað hafði verið til hálfleiks í Serbíu í fyrrakvöld. Getty/Stephen McCarthy UEFA mun meta það út frá skýrslum frá dómara og eftirlitsmanni hvort Ísraelum verði refsað fyrir það sem gekk á í hálfleik leiks Írlands og Ísraels í Þjóðadeildinni á sunnudag.
Írskir miðlar greindu frá því að Damien Doyle, einn aðstoðarmanna Heimis Hallgrímssonar í þjálfarateymi Íra, hefði sakað leikmann Ísraels um að hrækja á hann. Þessu hefðu serbneskir öryggisverðir meðal annars orðið vitni að. Spænski dómarinn Juan Martínez Munuera mun svo hafa skorist í leikinn og hvatt bæði lið til að sýna stillingu og hafa vit á að koma sér inn í búningsklefa. Írski ríkismiðillinn RTE segir að nú bíði UEFA eftir skýrslu frá Munuera sem og frá eftirlitsmanni leiksins, áður en óháð aganefnd geti þá tekið afstöðu til mögulegrar refsingar. Heimir gætti orða sinna þegar hann var spurður út í atvikið í viðtali eftir 1-1 jafnteflið í Serbíu á sunnudagskvöld (þar var leikið vegna ákvörðunar Íra frá því í sumar um að þeir treystu sér ekki til að spila leikinn í Dublin). Hann viðurkenndi þó að eitthvað hefði gengið á: „Ég var á staðnum. Ég ætla ekki að tjá mig um það. Þetta er eitthvað sem aganefnd mun líklega skoða,“ sagði Heimir. „Það kom fram ásökun um að einhver hefði hrækt á annan en ég sá það ekki og vil ekki ræða það. Það verður skoðað eins og allt annað sem átti sér stað milli liðanna. Mér fannst ætlunin vera að reyna að ögra okkur til að gera eitthvað heimskulegt og leikmennirnir eiga hrós skilið fyrir að svara því ekki,“ sagði Heimir. Írar uppskáru fimm stig úr fyrstu fjórum leikjum sínum í 3. riðli B-deildar Þjóðadeildarinnar og eru jafnir Kósovó í 2.-3. sæti fyrir síðustu tvær umferðirnar í nóvember. Austurríki er efst með átta stig en Ísrael neðst með tvö stig.
Þjóðadeild karla í fótbolta Heimir Hallgrímsson þjálfar landslið Írlands Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira