Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Birgir Olgeirsson skrifar 6. október 2026 11:01 Ólafur Jóhann Borgþórsson, framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. Félagið segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fáist ekki fjármögnun frá ríkinu. Rekstrarfélag Herjólfs segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggir ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum.
Óskað er eftir 65 milljónum króna í fjárlögum næsta árs vegna kaupanna. Þetta kemur fram í umsögn Herjólfs ohf. til fjárlaganefndar Alþingis frá 5. október 2026, sem Ólafur Jóhann Borgþórsson framkvæmdastjóri undirritar. „Eftir ágjafir ársins hefur félagið hins vegar ekki fjárhagslegt bolmagn til að bera kostnaðinn af kaupunum,“ segir í umsögninni. Félagið óskar eftir að fjárveitingin endurgreiði það sem það hefur þegar lagt út og greiði eftirstöðvarnar. Baldur kostaði rúmlega 200 milljónir Félagið rekur beiðnina til alvarlegrar bilunar í öðrum rafmótor Herjólfs síðastliðið vor. Samkvæmt umsögninni tók viðgerðin tæpa þrjá og hálfan mánuð og sigldi ferjan lengst af á skertu afli á meðan. Það dró úr ganghraða og stjórnhæfni skipsins, gerði siglingar til Landeyjahafnar erfiðari við krefjandi aðstæður og kom í veg fyrir að hægt væri að halda fullri sumaráætlun, að sögn félagsins. Herjólfur ohf. segir Breiðafjarðarferjuna Baldur hafa verið fengna til Vestmannaeyja til að draga úr hættu á samgöngurofi. Kostnaður vegna aðkomu Baldurs hafi numið rúmlega 200 milljónum króna og fjarvera hans jafnframt raskað ferjusamgöngum um Breiðafjörð. Samkvæmt félaginu er áætlað kaupverð varamótoranna um 65 milljónir króna, innan við þriðjungur kostnaðarins vegna Baldurs. Ráðherra sagði þurfa að tryggja varamótora Félagið vísar til þess að innviðaráðherra hafi lagt áherslu á að rekstraraðilar Herjólfs hefðu sérsmíðaða varamótora til ráðstöfunar. Í tilkynningu innviðaráðuneytisins frá 22. júní 2026 sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra mikilvægt að lágmarka líkur á að sambærileg staða kæmi aftur upp eða varaði jafn lengi. Þar nefndi hann sérstaklega nauðsyn þess að tryggja sérsmíðaða varamótora. Herjólfur ohf. segir mótorana hafa verið pantaða eftir samtöl við fulltrúa Vegagerðarinnar og ráðuneytisins. Smíðatíminn sé um níu mánuðir og afhending áætluð í byrjun febrúar 2027. Samkvæmt umsögninni eru rafmótorarnir í skipinu ólíkir og því þarf tvo varamótora. Verði varamótor tiltækur áætlar félagið að aðeins þurfi að taka Herjólf úr áætlun í fimm sólarhringa meðan skipt er um bilaðan mótor. Telja ríkið eiga að greiða Í umsögninni segir að ríkið eigi ferjuna og Vegagerðin sé fulltrúi þess sem eiganda. Herjólfur ohf. annist hins vegar rekstur skipsins. Félagið telur því að ríkið eigi að greiða fyrir varabúnaðinn. Það telur varamótorana geta stytt siglingarof vegna bilana og minnkað kostnað við að fá aðra ferju til afleysinga.
Herjólfur Vestmannaeyjar Fjárlagafrumvarp 2027 Samgöngumál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Fleiri fréttir Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? Sjá meira