Innlent

Rubio farinn af landi brott

Smári Jökull Jónsson skrifar
Rubio veifar í þann mund sem hann gengur um borð í flugvél bandaríska utanríkisráðuneytisins.
Rubio veifar í þann mund sem hann gengur um borð í flugvél bandaríska utanríkisráðuneytisins. Vísir/Anton Brink

Heimsókn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands er lokið en hann flaug af landi brott um hádegisbil í dag. Rubio heldur ferðalagi sínu um Evrópu áfram og mun á næstu dögum funda með ráðamönnum bæði í Portúgal og Grikklandi.

Rubio fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Safnahúsinu við Hverfisgötu í morgun.

Á blaðamannafundi sem haldinn var í kjölfarið lagði Rubio áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands en hann sagði legu Íslands skipta miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum. Jafnframt sagði hann að fjöldi tækifæra væru fyrir hendi til frekara samstarfs á sviði öryggis- og efnahagsmála.

Þorgerður og Rubio ásamt bandarískum hermanni á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Fyrir aftan má sjá Billy Long sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.Vísir/Anton Brink

Að blaðamannafundinum loknum hélt Rubio ásamt fylgdarliði sínu í bandaríska sendiráðið við Engjateig. 

Þaðan var haldið á Keflavíkurflugvöll þar sem Þorgerður Katrín tók á móti honum og kvöddust þau þar áður en Rubio hélt upp í flugvél sem tók á loft frá Keflavík upp úr hádegi. Rubio flýgur nú til Aþenu en Evrópuför hans lýkur með fundahöldum í Lissabon, höfuðborg Portúgals.


Tengdar fréttir

Rubio: Ísland í miðjunni

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×