Körfubolti

Dag­skráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfu­bolta­kvöldi

Sindri Sverrisson skrifar
Ólöf Helga Pálsdóttir og stöllur í Körfuboltakvöldi verða á sínum stað í kvöld.
Ólöf Helga Pálsdóttir og stöllur í Körfuboltakvöldi verða á sínum stað í kvöld. Sýn Sport

Bónus-deild kvenna á sviðið í kvöld á sportrásum Sýnar en þar eru tveir leikir á dagskrá og svo uppgjörsþátturinn Körfuboltakvöld.

Deildin hefur farið skemmtilega af stað og í kvöld má meðal annars sjá grannaslag Íslandsmeistara Njarðvíkur og stórveldis Keflavíkur klukkan 19:15 á Sýn Sport Ísland. 

Á meðan mætast Fjölnir og Tindastóll í Grafarvogi á Sýn Sport Ísland 2. 

Ólöf Helga Pálsdóttir og sérfræðingar hennar verða svo í Bónus Körfuboltakvöldi kvenna fljótlega eftir leikina eða um klukkan 21:15 og fara yfir alla umferðina.

Upplýsingar um allar beinar útsendingar Sýnar má finna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×