Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. október 2026 10:25 Harpa ræddi málin í Bítinu á Bylgjunni. Bylgjan Harpa Söring Ragnarsdóttir hefur hýst fjölda au pair-stúlkna, til að mynda frá Filippseyjum, og segir aðstoð þeirra hafa gjörbreytt heimilislífinu til hins betra. Lítið sem ekkert eftirlit hafi verið með au pair, sem ætti að bæta í stað þess að banna komu filippseyskra stúlkna alveg.
Birt voru drög að frumvarpi til breytinga á útlendingalögum í samráðsgátt í síðustu viku. Meðal breytinga er að au pair sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins fá ekki lengur dvalarleyfi hér á landi. Harpa tók á móti fyrstu au pair-stúlkunni þegar elsta barnið hennar var sex mánaða gamalt til að brúa bilið fyrir leikskólavist. Nú hafa þau verið í sjö ár samfleytt með au pair. „Það eru náttúrulega mismunandi þarfir milli fjölskyldna en eins og í okkar tilfelli þá eigum við tvö börn, ég og maðurinn minn. Maðurinn minn er hreyfihamlaður þannig að hann hefur svolítið takmarkaða getu þegar kemur að heimilislífinu. Þannig að það að vera með au pair fyrir okkur, það léttir ekki bara mér,“ segir Harpa sem ræddi málið í Bítinu á Bylgjunni. Með þessu getur eiginmaður hennar tekið meira þátt í heimilislífinu, til að mynda þegar börnin veikjast. Þá dvelur hann heima fyrir með börnin vitandi að aðstoðin er nálægt ef hann þarf á henni að halda. Myndist einstakt samband Harpa segir að það myndist mikið samband og tengsl milli fjölskyldunnar og au pair-stúlkunnar. Til að mynda sé sú þriðja sem kom til þeirra komin aftur til fjölskyldunnar eftir dvöl í Danmörku. Þær kynnist ekki einungis íslenskri menningu heldur kynnist fjölskyldan Filippseyjum. „Ég hef lært rosalega mikið um Filippseyjar á þessum árum sem þær hafa verið hjá okkur, um þeirra menningu, mat og fleira. Sama fyrir þær, þetta er rosalegt tækifæri fyrir þær. Ég veit ekki hvort margir viti það en það er rosalega erfitt fyrir fólk á Filippseyjum að ferðast frá Filippseyjum,“ segir hún. Það þurfi að uppfylla mjög strangar kröfur til að mega ferðast úr landi. Stúlkur sem hafa dvalið hjá Hörpu hafa nýtt tækifærið og meðal annars farið með fjölskyldunni til Bandaríkjanna og í Karíbahafið. Einnig ferðast þær sjálfar innan EES. „Ég held að atvinnumöguleikar þeirra á Filippseyjum séu miklu meiri eftir þessa reynslu sem þær öðlast.“ Eftirlitið lítið sem ekkert Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra sagði að breytingarnar hefðu verið lagðar til eftir ákall frá verkalýðshreyfingunni. Það séu oft margar sögur af vondri meðferð stúlknanna hér á landi. Harpa segist hafa leitað að tölfræði um brot gegn au pair en ekki fundið neitt. „Það er lögbundið eftirlit núna. Útlendingastofnun á að sinna eftirliti en það virðist bara vera þannig að í staðinn fyrir að sinna því ætla þau að banna þetta. Ég velti því fyrir mér hvort það sé ekki betra að láta reyna á það að sinna því annaðhvort með þeim hætti sem er gert ráð fyrir í lögum núna eða það mætti kannski breyta því,“ segir Harpa. Svo hún viti hefur aldrei verið haft samband við neina af þeim au pair-stúlkum sem hafa dvalið hjá henni og hefur enginn komið í heimsókn til að kanna aðstæður. Eftirlitið sé því ekki neitt. Harpa leggur til að stúlkurnar fái við komu til landsins sérstakan tengilið sem þær geta leitað til komi eitthvað upp. Rökin um að stúlkurnar eigi ekkert bakland eigi sér ekki stoð. Upplifun Hörpu er sú að innan tveggja til þriggja daga séu stúlkurnar komnar með stórt bakland hérlendis. Filippseyskt samfélag á Íslandi er frekar stórt og stúlkurnar séu oft trúræknar. Þær fara til að mynda í kirkju í hverri einustu viku þar sem þær hitta aðra Filippseyinga. Ýmislegt hægt að gera Harpa telur að það sé hægt að gera ýmislegt til að koma til móts við stúlkurnar. Til að mynda sé áðurnefndur tengiliður og hægt sé að hringja í stúlkurnar til að ræða viðkvæm mál í stað þess að koma í heimsókn þar sem ef til vill er rætt við hana fyrir framan fjölskylduna. „Mér finnst að það mætti til dæmis auðvelda að skipta um fjölskyldu. Þær geti leitað til Útlendingastofnunar ef þær telja brotið á sér og Útlendingastofnun vísar þeim á aðra fjölskyldu sem er að leita,“ segir hún. Hún þori ekki að fullvissa að ekkert eftirlit hafi verið hingað til en telur því að minnsta kosti ekki hafa verið framfylgt nægilega vel. Eftirspurnin sé samt sem áður mikil. Frumvarpsdrögin hafi vakið mikla athygli meðal þeirra sem hafa fengið til sín au pair.
Au-pair Bítið Bylgjan Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Viðurkennir ónákvæmt svar um fundi án Harðar Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Sjá meira