Íslenski boltinn

Kveðju­bréf frá Kidda Stein­dórs

Sindri Sverrisson skrifar
Kristinn Steindórsson hefur meðal annars átt ríkan þátt í öllum þremur Íslandsmeistaratitlum Breiðabliks.
Kristinn Steindórsson hefur meðal annars átt ríkan þátt í öllum þremur Íslandsmeistaratitlum Breiðabliks. VÍSIR/VILHELM

Fótboltamaðurinn Kristinn Steindórsson, sem uppalinn er hjá Breiðabliki og hefur leikið með liðinu stóran hluta ferilsins, mun kveðja félagið nú í haust.

Þrjár umferðir eru eftir af Bestu deildinni og tekur Breiðablik á móti Keflavík á sunnudaginn, mætir svo Víkingi og loks KR 24. október í lokaumferðinni.

Þetta eru síðustu leikirnir áður en Kristinn segir skilið við félagið sem er honum svo kært.

„Kæru Blikar. Það er orðið ljóst að þetta tímabil er mitt síðasta sem leikmaður Breiðabliks. Það eru margar tilfinningar sem brjótast fram en fyrst og fremst stolt. 

Ég er stoltur af mínum tíma hjá félaginu, stoltur að hafa borið kyndilinn á brjóstinu öll þessi ár og ég er gífurlega stoltur af árangrinum sem náðst hefur. Við höfum skrifað sögu félagsins og sögu íslenskrar knattspyrnu og gert það á okkar forsendum. Ég hef gefið allt mitt fyrir félagið og sé ekki eftir neinu.

Vonandi næ ég að kveðja sem flest ykkar á þeim tíma sem eftir lifir tímabils. Takk fyrir stuðninginn og takk fyrir mig,“ skrifaði Kristinn á Instagram.

Kristinn var hluti af gullkynslóð ungra leikmanna Breiðabliks sem sló í gegn og varð bikarmeistari árið 2009 og Íslandsmeistari árið 2010 í fyrsta sinn í sögu félagsins. 

Hann var svo í atvinnumennsku í Svíþjóð og Bandaríkjunum í fimm ár og lék með FH tvö tímabil áður en hann sneri aftur heim til Breiðabliks og var í liðinu sem varð Íslandsmeistari árin 2022 og 2024.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×