Skoðun

Gaur! Vertu töffari!

Sveinn Waage skrifar

Þegar karlmenn taka skýra og sýnilega afstöðu gegn kynferðisofbeldi eru þeir ekki, né þurfa að þóknast einhverju fólki út í bæ.

Við gerum það fyrir konurnar í okkar lífi og annarra.

Við eigum/áttum mæður og ömmur. Margir okkar eiga eiginkonur og systur og ef við erum extra heppnir í lífinu eigum við dætur. Og svo auðvitað frænkur okkar og vinkonur.

Við tökum afstöðu fyrir ÞÆR!

Ef þú ert svo heppinn að eiga dóttir sem elskar þig og þú myndir deyja fyrir, þá veistu vel hvað hræðir þig mest í lífinu. Þú færð illt í magann þegar þú hugsar til þess að á hana verði ráðist, ekki satt?

Konurnar í fréttunum sem er nauðgað og beittar ofbeldi eru ALLAR dætur einhvers! Og hversu ógeðslega feginn ertu að hún er ekki dóttir þín?

Að sjá það sem veikleika að standa með dætrum okkar allra er það galnasta sem um getur. Að sjá það sem "Ekki Töff" er einmitt akkúrat öfugt.

Það er ekkert eins aumkunarvert og Ekki Töff að vera Andrew Tate-típu fan og konuhatandi incel lúser. Halda að þú sért e-ð Alpha Wolf eintak.

By the way; L. David Mechkom sem kom með kenninguna um Alpha Wolf 1970 eyddi svo ferlinum að reyna að leiðrétta hana. Rannsóknin var gerð á úlfum í haldi en ekki í náttúrunni þar sem samvinna og virðing dýranna sigraði áskoranir.

Og talandi um töff; Það ER fokking TÖFF að standa með dætrum okkar allra!

Hvort haldið þig að sé líklegra að a) Þú náir að kynnast kláru, flottu stelpunni sem er með þér háskólanum með því að þykjast vera e-ð "Alpha" eintak eða B) að þú endir í "rómantísku mansali" í útlöndum.

Vertu TÖFF! Vertu sýnilega á móti ofbeldi. Vertu í liði með dætrum okkar allra. Þú passar mína dóttur og ég passa þína.

Vertu Fokking Töffari!

Höfundur er faðir, sonur, frændi, vinur, eiginmaður og töffari.




Skoðun

Sjá meira


×