Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 7. október 2026 13:25 Vladimír Pútín heimsótti Síberíu í ágúst. EPA/GAVRIIL GRIGOROV Bandarísk stjórnvöld segja fátt um svör frá Rússum vegna andláts rússneskrar konu sem starfaði á rannsóknarstofu í Síberíu og sögð er hafa látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Bandarískir miðlar hafa greint frá því að stjórnvöld í Bandaríkjunum ætli að herða leit sín að svörum frá þeim rússnesku og hefur Donald Trump Bandaríkjaforseti sagst munu ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um málið.
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að markmiði að rannsaka pestir, oftast kenndar við plágu, hafi látist. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar hafa greint frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni. Fram kemur í umfjöllun CNN að rússnesk stjórnvöld hafi þráast við að deila upplýsingum um atvikið með stjórnvöldum í Bandaríkjunum. Áður hefur verið haft eftir fulltrúum rússneskra sóttvarnaryfirvalda að ekki sé um hættuástand að ræða. CNN segir að Bandaríkin hafi sent Rússlandi formlega diplómatíska orðsendingu í gær og krafist svara um atvikið. Þá hefur miðillinn eftir talsmanni bandaríska utanríkisráðuneytisins að Bandaríkin eigi einnig í samskipti við önnur ríki vegna málsins. Miðillinn lætur þess getið að Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi svarað spurningum um málið í gær. Það gerði hann á Íslandi. „Það hvílir augljóslega á Rússum að deila meiri upplýsingum með umheiminum,“ sagði Rubio. „Kannski er þetta umfangsmeira en við héldum. Við vitum það ekki, en ég tel að það væri óábyrgt á þessari stundu, miðað við þær takmörkuðu upplýsingar sem við höfum enn, að vera með getgátur.“ Þá segir CNN að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi sagt við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í gær að hann myndi brátt slá á þráðinn til Vladimír Pútíns vegna málsins. Rússnesk stjórnvöld hafa sagt að ekkert slíkt símtal sé á dagskrá. CNN hefur eftir heimildarmönnum að bandarískir embættismenn velti vöngum yfir því hve hreinskilnir Rússar séu vegna málsins. Meðal mikilvægra spurninga þess sem sé enn ósvarað sé nákvæmlega hvernig starfsmaðurin hafi látist. Rússnesk sóttvarnaryfirvöld hafa sagt hana hafa látist úr óþekktum lungnasjúkdómi. Starfsfólk stofnunarinnar rannsaki plágu auk fjölda annarra hættulegra sjúkdóma, þar á meðal kóleru og miltisbrand. Þá leiti bandarísk stjórnvöld einnig svara við því hvort um sé að ræða sjúkdóm sem breytt hafi verið af mannavöldum með einhverjum hætti. Þau hafa ítrekað að þau fylgist náið með málinu.
Rússland Bandaríkin Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Fleiri fréttir Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Sjá meira