Fótbolti

Eins og óendurgoldin ást

Valur Páll Eiríksson skrifar
Sabri Lamouchi fékk ekki langan tíma í starfi hjá Túnis.
Sabri Lamouchi fékk ekki langan tíma í starfi hjá Túnis. Getty/Marco Steinbrenner

Þegar Sabri Lamouchi tók við sem aðalþjálfari Túnis í janúar trúði hann því að hann gæti haft umbreytandi áhrif á norðurafríska liðið með heimsmeistaramót fram undan. Sú von entist skammt.

Frakkinn komst vissulega á spjöld sögunnar á heimsmeistaramóti sumarsins, en það var ekki beint sá kafli sem hann vildi skrifa. Sú saga varð ekki mikið lengri en formálinn.

Lamouchi varð fyrsti aðalþjálfarinn til að vera rekinn eftir aðeins einn leik á heimsmeistaramóti.

Túnis tapaði fyrsta leik á mótinu 5-1 fyrir Svíum í Mexíkó. Það var nóg til að túniska knattspyrnusambandið segði hingað og ekki lengra og sleit samstarfinu við Frakkann sem náði aðeins að stýra liðinu í fimm leikjum á fimm mánuðum við stjórnvölin.

Lítandi til baka líkir hann stuttu sambandi við Túnisa við eitthvað í ætt við óendurgoldna ást.

„Ég var sannfærður um að ég gæti breytt einhverju fyrir þá,“ segir Lamouchi. „Ég er ekki viss um að þeir hafi verið á sömu blaðsíðu.“

„Þetta er eins og í lífinu, maður vill giftast einni konu, ævilangt. En konan elskar mann ekki. Maður stendur í brúðkaupinu og bíður eftir henni, en hún ákveður að mæta ekki. Hún vill ekki giftast manni,“ segir Lamouchi.

„Þetta var sorglegt fyrir mig. Þetta verður hluti af því sem eftir er af lífi mínu, ferli mínum. En svona er þetta bara.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×