Handbolti

Norska stjarnan lenti í á­rekstri við dómara

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Nora Mork í leik með norska landsliðinu.
Nora Mork í leik með norska landsliðinu. vísir/getty

Norska stórstjarnan Nora Mørk var flutt í sjúkrahús eftir að hafa meiðst á sérkennilegan hátt í leik í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Mørk spilar með Esbjerg og var að spila gegn Horsens er hún varð fyrir meiðslunum.

Hún er á harðaspretti í átt að varamannabekknum til að skipta er hún lendir í árekstri við annan dómara leiksins.

Mørk fór illa út úr þeim árekstri. Hún meiddist á fæti og var borin sárþjáð af velli.

Í kjölfarið var farið með hana upp á sjúkrahús í myndatöku enda óttast að meiðslin væru alvarleg.

Esbjerg vann leikinn 37-23.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×