Sport

Hljóð­nema á dómarana og hvar er Kane?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
DeAndre Kane virðist vera týndur og tröllum gefinn.
DeAndre Kane virðist vera týndur og tröllum gefinn. vísir/diego

Besta sætið er spennt fyrir komandi tímabili í Bónus deild karla en vill heyra meira í dómurunum.

Það er búið að gera alls konar breytingar á reglunum og Besta sætið vill sjá dómara með hljóðnema. Fordæmið er til staðar og margir sem myndu pottþétt fagna því.

Breytingarnar eru nefnilega talsverðar eins og Kristinn Óskarsson fer ítarlega í gegnum í fréttinni hér að neðan.

Álftnesingum er spáð deildarmeistaratitli og ekki að ósekju. Álftanes er með rosalegan mannskap og magnaðan þjálfara í Baldri Þór Ragnarssyni.

Tindastóll, Grindavík og KR eru einnig með hörkulið og allt útlit fyrir geggjaðan vetur í körfunni.

Meistarar Grindavíkur mæta þó haltrandi til leiks. Jeremy Pargo og Daniel Mortensen eru meiddir til að mynda og svo næst ekki í DeAndre Kane sem eðli málsins samkvæmt á að vera mættur til landsins.

Allir leikir í beinni á rásum Sýnar Sports í kvöld og allir leikir á sama stað í Skiptiborðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×