Sport

Þjálfari Hauks rekinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Maik Machulla á hliðarlínunni.
Maik Machulla á hliðarlínunni. Vísir/Alex Grimm/Getty Images

Þýska handboltaliðið Rhein-Neckar Löwen hefur rekið þjálfarann Maik Machulla en frá þessu greinir félagið í tilkynningu og þýskir miðlar fjalla um í kjölfarið.

Liðið hefur ekki náð sér á strik á tímabilinu en liðið hefur tapað fjórum leikjum og er í 11. sæti deildarinnar.  

Landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson er leikmaður liðsins en hann fór á kostum á síðasta tímabili.

Machulla tók við liðinu fyrir síðasta tímabil og stoppaði stutt við. Aðstoðarþjálfarinn Michel Abt tekur við liðinu tímabundið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×