Erlent

Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimm­tíu gráður

Kjartan Kjartansson skrifar
Verslanakeðjan Intermarché er á meðal þeirra sem varð fyrir árásinni. Hún er sögð beinst að Danfoss-kælum frá Danmörku.
Verslanakeðjan Intermarché er á meðal þeirra sem varð fyrir árásinni. Hún er sögð beinst að Danfoss-kælum frá Danmörku. Vísir/Getty

Töluvert magn af matvælum fór til spillis þegar tölvuárás slökkti á kælum stórra franskra matvöruverslanakeðja í dag. Franskar og evrópskar netöryggissveitir rannsaka árásina sem beindist að dönskum kælum.

Bæði Intermarché og Cooperative, tvær af stærstu stórmarkaðskeðjum Frakklands, urðu fyrir barðinu á tölvuárásinni, að því er segir í frétt evrópska blaðsins Politico. Hundruð verslana urðu fyrir áhrifum af völdum hennar.

Franskir fjölmiðlar segja að árásin hafi beinst að kælum frá danska framleiðandanum Danfoss. Skrifstofa Sébastiens Lecornu, forsætisráðherra Frakklands, segir að galli hafi fundist í hugbúnaði kælanna og að danskt fyrirtæki hafi verið látið vita af honum.

Franska netöryggissveitin rannsakar nú árásina og nýtur liðsinnis annarra sveita frá Evrópusambandinu og fleiri ríkja sem kunna að hafa orðið fyrir árásinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×