Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Freyja Þórisdóttir skrifar 12. október 2026 22:08 Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins heillaðist fyrst af sjálfkeyrandi bílum úti í Bandaríkjunum fyrir um ári. Vísir/Vilhelm Rósa Guðbjartsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist hafa heillast af sjálfkeyrandi bílum fyrir um ári og telur mikið á því að græða að uppfæra lög svo að svoleiðis tækni sé möguleg hérlendis. Þá sé öryggið í þessum bílum sjö- eða áttfalt meira en í hefðbundnum akstri og maður upplifi það mjög fljótt að geta slakað á og nýtt tímann í umferðinni í stað þess að þurfa að einbeita sér að akstrinum.
Var þetta meðal þess sem snert var á í dag þar sem Rósa var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni. Hún sagðist fyrst hafa kynnst tækninni í heimsókn hjá syni sínum fyrir um ári. Fleiri og fleiri ríki leyfi tæknina „Ég heillaðist af þessari tækni fyrir rúmu ári þegar ég kynntist þessu fyrst í Texas í Bandaríkjunum, þar sem sonur minn býr, og þá var um að ræða algjörlega sjálfkeyrandi leigubíl,“ sagði hún og ítrekaði að upplifunin hafi verið mögnuð. Í kjölfarið hafi hún farið að kynna sér tæknina og nú sé hvert ríkið á fætur öðru að leyfa sjálfkeyrandi bíla. Elon Musk er framkvæmdastjóri Tesla sem framleiðir sjálfkeyrandi bíla. Á síðu þeirra að tæknin geri bifreiðinni kleift að sjá um stýringu, akreinaskipti og bílastæðalagningu, þó að ökumaðurinn beri áfram lagalega ábyrgð og verði að vera reiðubúinn að grípa inn í.AP/Mark Schiefelbein „Það er enn ekki leyfilegt að sitja aftur í og láta bílinn algjörlega um þetta, ekki sem sagt einkabílinn, þótt leigubílarnir séu náttúrulega löngu komnir þangað,“ sagði Rósa og útskýrði að hún skilji sem svo að bráðlega verði hægt að sitja í aftursætinu á sjálfkeyrandi einkabíl. „Þá er fjarlægðin í vinnu sko orðið allt annað mál. Þú getur verið að undirbúa þig fyrir vinnuna eða skóla eða hvað sem er og situr bara aftur í og lætur bílinn um þetta,“ sagði hún jafnframt og bætti við að eftir að hafa kynnst þessu hafi hún lagt fram þingsályktunartillögu á síðasta þingi sem hafi verið endurflutt núna í haust um það að þetta verði leyft hérlendis. En er þetta raunhæft fyrir Ísland? Tölum íslensku hérna. Það er allt á kafi í snjó bara eftir örskamma stund hérna á höfuðborgarsvæðinu. Stormur á leiðinni. „Já, það er líka í Kanada og stundum í Danmörku og víðar þar sem þetta er komið á fljúgandi ferð. Það snýst um það að tæknin í bílnum er alltaf að verða meiri og meiri og það er svo magnað bara frá því að maður sá þetta fyrst fyrir rúmu ári hvað er að gerast frá mánuði til mánaðar í þeim efnum,“ svaraði Rósa og enn fremur: Þetta snýst um það að halda myndavélinni hreinni á bílnum, halda auganu sem sér um aksturinn fyrir þig hreinu. Það sé þó að sjálfsögðu margt sem þurfi að skoða í lagaumhverfinu svo þessi draumur geti orðið að veruleika hér á landi. Treysti tækninni nánast samstundis Henni hafi í raun fundist ótrúlegt hvað tæknin væri fær enda þyrfti hún ekki nema að setja inn hvaða stað hún vildi enda uppi á og svo gæti hún slappað af þar til á staðinn væri komið. „Ég ætla að fara núna þarna í þessa matvöruverslun og sitja svo og slappa af í rauninni. Það er alveg ótrúlegt, ég hefði ekki trúað því hvað maður fljótt og strax treystir tækninni,“ sagði hún og bætti við að „maður upplifir líka svolítið sterkt hvað þegar maður er að keyra bíl í umferðinni og látunum og hringtorgunum og allt þetta að það er ákveðið álag sem maður er undir án þess kannski að fatta það af því að maður er svo vanur því.“ Hægt er að hlusta á viðtalið hér fyrir ofan en þar nefnir Rósa að í náinni framtíð gæti sjálfkeyrandi bíll komið í staðinn fyrir þörfina á að hafa tvo bíla á hverju heimili. Bíllinn gæti í raun skutlað fólki á milli staða. Þá ræðir hún einnig við þáttastjórnendur um þau viðbrögð sem hún hefur fengið inni á þingi sem og utan þess.
Sjálfstæðisflokkurinn Umferð Umferðaröryggi Bandaríkin Tesla Reykjavík síðdegis Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Fleiri fréttir „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Sjá meira