Körfubolti

Dísætur sigur Stjörnunnar en bilið breitt í Kefla­vík og á Króknum

Sindri Sverrisson skrifar
Hannah Little og stöllur í Keflavík áttu ekki í neinum vandræðum gegn Fjölni í kvöld.
Hannah Little og stöllur í Keflavík áttu ekki í neinum vandræðum gegn Fjölni í kvöld. vísir/Anton

Stjörnukonur unnu Hauka í spennuleik í Ólafssal í kvöld, í 3. umferð Bónus-deildarinnar í körfubolta. Keflavík vann stórsigur á heimavelli gegn Fjölni og Grindavík gerði slíkt hið sama gegn Tindastóli á Sauðárkróki.

Í Vesturbænum urðu Íslandsmeistarar Njarðvíkur fyrsta liðið til að vinna KR á þessari leiktíð eins og lesa má um með því að smella hér.

Mesta spenna kvöldsins var hins vegar í Hafnarfirði þar sem Haukar höfðu forystuna lengi vel en Stjarnan komst svo yfir í þriðja leikhluta og var 56-53 yfir fyrir lokaleikhlutann.

Þar var spennan mikil en Stjörnukonur stóðust pressuna í lokin og Diljá Ögn Lárusdóttir innsiglaði 76-70 sigur þeirra með síðasta skoti leiksins.

Fimm leikmenn Stjörnunnar skoruðu yfir tíu stig hver í leiknum. Diljá varð stigahæst með 17 stig, Stina Almquist skoraði 14, Eva Wium Elíasdóttir og Xaviera Dyer 13 hvor og Agnes María Svansdóttir 11. Dyer tók líka heil 19 fráköst, Agnes 9 og Eva 8 auk þess að gefa flestar stoðsendingar eða 7.

Hjá Haukum var Jadakiss Guinn stigahæst með 21 stig og Eloise Pavrette skoraði 14 en liðið er án fyrirliðans Þóru Kristínar Jónsdóttur í upphafi leiktíðar.

Á Sauðárkróki stungu Grindvíkingar af í öðrum leikhluta og enduðu á að vinna 22 stiga sigur, 84-62.

Grindavík er því eina liðið sem enn er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir en Tindastóll hafði unnið fyrstu tvo leiki sína.

Abby Beeman var stigahæst Grindavíkur með 24 stig og Farhiya Abdi skoraði 20. Hjá heimakonum var Quinzia Fulmore stigahæst með 21 stig og hún tók 18 fráköst.

Keflavík vann svo enn öruggari sigur á heimavelli gegn nýliðum Fjölnis, 98-61, eftir að hafa verið 48-30 yfir í hálfleik. Þetta var fyrsti sigur Keflavíkur en Fjölnir er án stiga á botni deildarinnar líkt og Ármann sem á leik til góða við Val annað kvöld.

Amaiquen Siciliano var stigahæst Keflavíkur með 20 stig og Thelma Dís Ágústsdóttir skoraði 17. Hjá Fjölni var Arna Rún Eyþórsdóttir stigahæst með 16 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×