Verðbólgan verði þrálát út árið Atli Ísleifsson skrifar 14. október 2026 10:37 Bergþóra Baldursdóttir er hagfræðingur Íslandsbanka. Vísir/Anton Brink Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs muni hækka um 0,45 prósent í október frá fyrri mánuði og að ársverðbólga muni þannig haldast óbreytt í 5,9 prósentum. Spáð er að verðbólga verði áfram þrálát út árið og skapi þróun olíuverðs nokkra óvissu um skammtímahorfurnar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Greiningu Íslandsbanka. Þar segir að eftir áramót séu hins vegar horfur á hraðari hjöðnun og að verðbólga nálgist efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins á næsta ári. Bankinn spáir nú meiri hækkunum milli mánaða en í bráðabirgðaspá sinni, sem skýrist fyrst og fremst af meiri hækkun eldsneytisverðs en áður var gert ráð fyrir. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 29. október næstkomandi. „Eldsneyti hefur mest áhrif til hækkunar í októberspánni. Við spáum því að eldsneytisverð hækki um 7,8% á milli mánaða (0,24% áhrif á VNV). Það er meiri hækkun en við gerðum ráð fyrir í bráðabirgðaspánni. Hráolíu- og bensínverð á heimsmarkaði hefur hækkað talsvert undanfarna mánuði og áhrifa þeirrar þróunar er þegar farið að gæta í verði á dælunni hérlendis. Eldsneytisverð hækkaði talsvert í síðasta mánuði og meira en skýra mátti með hækkun virðisaukaskatts einni saman. Óvissa er um áframhaldandi þróun heimsmarkaðsverðs. Haldi verð áfram að hækka eða verði það áfram hátt gætu áhrifin með tímanum komið fram í fleiri undirliðum vísitölunnar. Flugverð hækkar einnig á milli mánaða. Samkvæmt mælingu okkar hækkar flugverð um 1,4% (0,04% áhrif á VNV). Lítið þarf út af að bregða til að flugverð hækki meira en ella á næstu mánuðum vegna hærra verðs á þotueldsneyti. Á móti vegur minni eftirspurn eftir flugi þegar lengra líður frá háannatíma í ferðaþjónustunni. Komugjöld hækka heilsuliðinn Heilsuliðurinn hækkaði nokkuð í síðasta mánuði vegna hækkunar á komugjöldum í heilsugæslu. Við búumst við að liðurinn hækki áfram nú í október, þar sem sams konar breytingar á komugjöldum í sjúkraþjálfun, talþjálfun og iðjuþjálfun koma inn í mælinguna samkvæmt Hagstofunni. Við spáum því að liðurinn heilsa hækki um 1,1% (0,04% áhrif á VNV). Lækkar matvöruverð? Nokkrar af stærstu dagvöruverslunum landsins hafa að undanförnu boðað verðfrystingar eða verðlækkanir fram að áramótum. Áhrif aðgerðanna á vísitölu neysluverðs ráðast meðal annars af því hvort viðkomandi vörur séu mældar í verðkönnun Hagstofunnar og vægi þeirra í neyslukörfunni. Við teljum að aðgerðirnar ættu að halda aftur af verðhækkunum á matar- og drykkjarlið vísitölunnar og draga þannig úr verðþrýstingi á næstu mánuðum. Dagvöruvísitala ASÍ bendir þó til 0,52% hækkunar á vörukörfunni milli mánaða. Þar vegur töluverð hækkun hjá Nettó þungt, eftir verðlækkun þar í síðasta mánuði. Sé horft fram hjá þessum sveiflum eru verðbreytingar á milli mánaða hins vegar almennt litlar. Við spáum því að matar- og drykkjarliður vísitölunnar standi nánast í stað á milli mánaða. Reiknuð húsaleiga á sínum stað Ekki má gleyma reiknuðu húsaleigunni sem er á sínum stað enda vegur hún þungt í vísitölu neysluverðs. Við spáum að hún hækki um 0,4% milli mánaða sem er svipuð hækkun og í síðasta mánuði. Lítið þarf út af að bregða til að hún hækki meira og þá gæti verðbólga mælst meiri en hér er spáð. Verðbólguhorfur Eftir verðmælingu í októbermánuði mun ársverðbólga reynast lítillega meiri næstu mánuði en áður var spáð. Í janúar mun hún þó hjaðna hraðar, meðal annars vegna hóflegri hækkana á krónutölugjöldum og gjaldskrám hins opinbera en áður var vænst vegna aðkomu stjórnvalda að nýlegri endurskoðun kjarasamninga. Nóvember: 0,4% lækkun VNV (6,0% ársverðbólga) – Dagur einhleypra lendir í verðsöfnunarviku Hagstofunnar og flugfargjöld lækka. Á móti hækkar eldsneytisverð, en þó minna en í október. Desember: 0,85% hækkun VNV (5,7% ársverðbólga) – Áhrif afsláttardaga ganga að mestu til baka og flugfargjöld hækka árstíðabundið. Eldsneytisverð stendur í stað. Janúar: 0,1% lækkun VNV (5,2% ársverðbólga) – Hækkanir krónutölugjalda og gjaldskráa hjá opinberum aðilum. Kílómetragjald hækkar. Útsölur og lækkun flugfargjalda vega á móti. Ef horft er lengra fram í tímann er útlit fyrir að verðbólga hjaðni áfram og verði nálægt 4%, sem eru efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans, á næsta ári. Spáin er þó bundin töluverðri óvissu. Um þessar mundir snýr óvissan ekki síst að þróun olíuverðs og því hvort það haldi áfram að hækka eða haldist hátt til lengri tíma,“ segir í verðbólguspá Íslandsbanka.
Íslandsbanki Verðlag Íslenska krónan Fjármál heimilisins Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira