Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Andri Broddason skrifar 14. október 2026 14:46 Stjórn Manchester United er ekki sátt með athugasemdir Lissandro Martinez. Oscar J. Barroso/Getty Images Óvíst er hvað verður um framtíð Lissandro Martinez, leikmanns Manchester United, hjá félaginu. Hann gagnrýndi stjórn liðsins harðlega eftir leik gærkvöldsins þar sem Manchester United tapaði fyrir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu.
Mikil ringulreið virðist hafa myndast eftir að Martinez gagnrýndi stjórn félagsins fyrir að standa ekki með leikmönnunum. Manchester United endaði í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili eftir erfiða byrjun á tímabilinu og hefur liðið ekki fengið liðsauka í sumar til að takast á við bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeild Evrópu. Mikið ákall var meðal bæði stuðningsmanna og leikmanna Manchester United til að stækka leikmannahópinn og styrkja ef liðið ætlaði að ná langt í bæði ensku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu. Það virðist ekki hafa gerst og voru einu kaup sumarsins gerð á miðjunni. Í byrjunarliðinu í gær var Ayden Heaven í vinstri bakverði en hann spilar vanalega sem miðvörður. Manchester United var aðeins með einn leikmann sem er hreinræktaður vinstri bakvörður fyrir tímabilið og var það Luke Shaw. Þrátt fyrir að hafa verið lengi leikmaður Manchester United þá hefur hann langa meiðslasögu og er hann fjarverandi vegna meiðsla. Gagnrýni Martinez var helst beint að Jason Wilcox sem er yfirmaður knattspyrnumála hjá Manchester United. Samkvæmt Sky Sports er stjórn Manchester United brjáluð yfir athugasemdum hans í gær og er líklegt að félagið standi með Wilcox. Verður Martinez áfram hjá Manchester United? Aðeins eitt ár er eftir af samningi Martinez við félagið en hægt er að framlengja samninginn um eitt ár. Ekki er þó víst að félagið geri það eftir ringulreiðina sem hann skapaði en Martinez langaði að fara í sumar. Hann tjáði að hann vildi fara til Atletico Madrid, mótherja Manchester United í gær, síðasta sumar en enska félagið fékk ekki nógu gott tilboð í hann. Framtíð argentíska miðvarðarins hjá félaginu virðist því vera í lausu lofti. Þrátt fyrir það hefur hann verið mikilvægur leikmaður í liði Manchester United og óvíst hvernig gengi liðsins verður án hans í miðverðinum.
Fótbolti Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester United Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Fleiri fréttir Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Sjá meira