Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Birgir Olgeirsson skrifar 14. október 2026 16:45 Skoða á sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir áhyggjur foreldra af öryggi og aðgengi. Magnea Gná Jóhannsdóttir samdi tillöguna sem meirihlutinn lagði fram. Reykjavíkurborg Skoða á sérstök sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir ábendingar foreldra um erfiða og óörugga aðkomu. Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir að ekki hafi verið nægilega hugað að aðgengi foreldra sem koma með börn sín á bíl.
Magnea samdi tillöguna sem fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, lögðu fram og var samþykkt í ráðinu í dag. „Tillagan er lögð fram í kjölfar samtala minna við foreldra barna í leikskólanum, sem hafa lýst áhyggjum af öryggi og aðgengi að leikskólanum. Foreldrar hafa upplifað aðstæður við aðkomu að leikskólanum sem bæði erfiðar og óöruggar,“ segir Magnea Gná. Ekki nægilega hugað að aðkomunni Hún segir foreldra lengi hafa bent á að aðgengið sé ófullnægjandi þegar ung börn eru sótt eða þeim skilað. „Þetta er að mörgu leyti heimatilbúinn vandi. Leikskólinn er á þéttingarreit en við skipulagið var ekki nægilega hugað að því hvernig foreldrar sem koma á bíl eiga að geta komið börnunum sínum örugglega til og frá leikskólanum.“ Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir aðgengisvandann við leikskólann að mörgu leyti heimatilbúinn. Ekki hafi verið nægilega hugað að foreldrum sem koma með börn sín á bíl. Leikskólinn rúmar sextíu börn í fjórum deildum og er ætlaður börnum frá tólf mánaða aldri til þriggja ára. Í greinargerð tillögunnar segir að takmarkað framboð bílastæða í nágrenninu geti gert foreldrum erfitt fyrir. Skoða á staðsetningu sérmerktra skammtímastæða, merkingar og tímamörk svo þau nýtist við að sækja og skila börnum. Útfærslan verður síðan lögð fyrir ráðið. Lærdómur fyrir aðra leikskóla Magnea segir mikilvægt að bregðast við ábendingum foreldra. „Þetta er líka lærdómur sem við eigum að taka með okkur í skipulagningu annarra leikskóla, aðgengi foreldra og öryggi barna þarf að vera hugsað inn í skipulagið frá upphafi.“ Ráðið samþykkti jafnframt tillögu áheyrnarfulltrúa Vinstrisins um að skoða sambærileg stæði við fleiri skólabyggingar þar sem þau vantar. Sú tillaga nær til leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs.
Leikskólar Skipulagsmál Börn og uppeldi Samgöngumál Reykjavík Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira