Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. október 2026 21:51 Sally Rooney skrifaði meðal annars Normal People sem varð geysivinsæl. Getty Írski metsöluhöfundurinn Sally Rooney hefur tekið bækurnar sínar úr sölu í Bretlandi. Hún styrkir samtök sem styðja Palestínu en eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök í Bretlandi.
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fyrir verk hennar. „Það er óverjandi staða fyrir útgefanda að selja verk rithöfundar án þess að geta greitt honum tekjurnar. Af þeim sökum, og í fullu samráði við Sally, höfum við tekið þá ákvörðun að við getum ekki lengur boðið verk hennar til sölu í Bretlandi á neinu formi. Við erum áfram stoltur útgefandi hennar merkilegu ritverka, sem við munum halda áfram að selja á öðrum markaðssvæðum,“ segir í yfirlýsingunni. Umrædd samtök heita Palestine Action en þau eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök af breskum yfirvöldum. Í ágúst árið 2025 tilkynnti Rooney að hún ætlaði að gefa allan hagnað af sölu bóka sinna til félagsins. Meðal þess sem fulltrúar samtakanna hafa gert, samkvæmt umfjöllun NYT, er að eyðileggja aðstöðu tengda ísraelskum vopnaframleiðanda og brotist inn í stærstu flugherstöð Bretlands þar sem þeir spreyjuðu málningu á tvær flugvélar. Samtökin standa einnig að friðsamlegum mótmælum. Að minnsta kosti þrjú þúsund hafa verið handteknir fyrir tengsl sín við Palestine Action. Í kjölfar þess forðaðist hún að ferðast til Bretlands og mætti meðal annars ekki á Sky Art-verðlaunahátíðina eftir að hafa hlotið verðlaunin. Alex Bowler, ritstjóri Rooney, tók við verðlaununum fyrir hennar hönd. Hefði rithöfundurinn ferðast til landsins gæti hún verið handtekin á þeim forsendum að hún sé hryðjuverkamaður þar sem hún hafi stutt fjárhagslega við hryðjuverkasamtök. Rooney hefur gefið út fjöldann allan af vinsælum bókmenntum á við Eins og fólk er flest (Normal People), Okkar á milli (Conversations With Friends) og Millileik (Intermezzo).
Bretland Írland Bókmenntir Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Sjá meira