Kannast ekki við lýsingar Jóns Bjarki Sigurðsson skrifar 17. október 2026 13:57 Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra kannast ekki við að samband hennar og utanríkisráðherra sé stirt. Vísir/Ívar Fannar Dómsmálaráðherra segist ekki kannast við það að samband hennar og utanríkisráðherra sé stirt, líkt og Jón Gnarr, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, hélt fram í gær. Það sé áfall fyrir flokkinn og ríkisstjórnina að hann kjósi að ganga úr þingflokknum.
Í þætti Spursmála í gær sagði Jón Gnarr, sem sagði sig í vikunni úr þingflokki Viðreisnar, að það andaði köldu milli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, og Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra. Það hafi verið hluti af ástæðum þess að hann vildi koma sér úr þingflokknum. Þorbjörg Sigríður segist í samtali við fréttastofu ekki kannast við lýsingar Jóns um samband hennar og formanns flokksins. „Ég get ekki tekið undir þessar lýsingar sem þarna komu fram en við erum auðvitað í stjórnmálum. Við tökumst reglulega á um hugmyndir og annað, en persónuleg samskipti hafa verið góð,“ segir Þorbjörg Sigríður. Kraftmikil en heilbrigð samskipti Hún og Þorgerður séu góðar vinkonur. „Við erum búnar að þekkjast mjög lengi og ég myndi líta þannig á málið og þannig vinn ég, mér finnst betra að við bara tölum opinskátt saman. Þannig held ég að best sé að hafa hlutina en samstarf innan Viðreisnar og innan ríkisstjórnarinnar hefur að mínu mati gengið mjög vel og samskiptin eru, þau eru auðvitað kraftmikil stundum en þau eru heilbrigð og þau eru góð,“ segir Þorbjörg Sigríður. Það sé áfall fyrir flokkinn og ríkisstjórnina að Jón kjósi að ganga úr þingflokknum. Þá verði að taka áhyggjum hans alvarlega og ræða þær innan flokksins. „Hann hefur farið fram með sína gagnrýni og orð þess eðlis að það þarf að taka þau alvarlega. Ég heyri bæði í samtölum innan Viðreisnar og opinberlega af hálfu formannsins að hún tekur þessum orðum hans alvarlega og það verðum við auðvitað öll að gera,“ segir Þorbjörg Sigríður. Málamiðlanir hluti af samstarfi Jón sagði í samtali við fréttastofu á fimmtudag, skömmu eftir að hann sagði sig úr þingflokknum, að upp hefðu komið persónuleg vandamál og áföll innan flokksins sem fólk hefði tekist misjafnlega á við. Hann ræddi um pólitískan ágreining við forystu þingflokksins, meðal annars fannst honum hann ekki fá nægilegan hljómgrunn fyrir hugmyndir sínar um einstaklingsfrelsi og aðgerðir í málefnum barna í vanda. „Það fylgir samstarfi að við gerum málamiðlanir og við erum ekki fyrsta ríkisstjórnin sem fer í gegnum það. Það er auðvitað alltaf ákveðið reiptog flokka,“ segir Þorbjörg Sigríður aðspurð hvort hún telji Viðreisn ekki vera að fá sitt í gegn í ríkisstjórnarsamstarfinu. Hún segir Jón eiga rétt á að gagnrýna það sem hann vill gagnrýna þó svo hún sé ekki sammála öllum lýsingum hans. „Hann er að lýsa því hvernig hann hefur upplifað ákveðna hluti þarna í stjórnun flokksins og honum er frjálst að lýsa því hvað það er sem gerir það að verkum að hann yfirgefur þingflokkinn. Það er auðvitað mjög stór ákvörðun fyrir hvern þingmann að taka og ég ætla svo sem ekki að hafa aðrar skoðanir á því en að hann sé best til þess fallinn að segja frá því hvað var þarna að baki,“ segir Þorbjörg Sigríður.
Viðreisn Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent Fleiri fréttir Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Sjá meira