Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar 20. október 2026 13:00 Heyrst hefur í almennri umræðu undanfarið að staða fyrstu kaupenda sé að batna, þar sem hlutfall þeirra af kaupsamningum hafi aldrei verið hærra. Myndin er önnur þegar fjöldi kaupenda er skoðaður. Hærra hlutfall, færri kaupendur Hlutfallið hækkar fyrst og fremst vegna þess að öðrum kaupendum fækkar. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði kaupsamningum fyrstu kaupenda um 3% milli 2024 og 2025, en öðrum kaupsamningum fækkaði um tæp 13%. Fyrstu kaupendur þar voru um 2.800 árið 2025, um 20% færri en árið 2021. Fækkunin er nær öll meðal fyrstu kaupenda sem fæddir eru á Íslandi. Mynd 1. Fyrstu kaupendur á höfuðborgarsvæðinu eftir fæðingarlandi og aðrir kaupendur. Heimild: HMS og Valjú. Aðeins 3,2% einstaklinga um þrítugt geta keypt sína fyrstu íbúð óstuddir. Hinir þurfa aðstoð baklands eða ríkisins, bíða eða flytja í burtu. Þetta er ekki náttúrulögmál. Þetta er afleiðing þess að of fáar byggingarhæfar lóðir eru til, sem heldur húsnæðisverði háu, og að of fáar litlar íbúðir eru byggðar. Íbúðaverð 149%, laun 103% Frá 2015 til 2025 hækkaði fermetraverð íbúða á höfuðborgarsvæðinu um 149% en laun um 103%. Meðalíbúð fyrstu kaupenda fór úr 31,7 í 70,6 milljónir króna. Til að kaupa hana þarf um 7 milljónir í eigið fé, en fólk á aldrinum 25–35 ára á að meðaltali 1,8 milljónir utan fasteigna. Viljann vantar ekki. Um 61% leigjenda safna nú fyrir útborgun, samanborið við 41% árið 2022, en samt telja nær tveir af hverjum þremur ólíklegt eða útilokað að þau kaupi næst þegar þau flytja. 91 fermetri þegar þörfin er 60 Fyrstu kaupendur á hinum Norðurlöndunum kaupa að jafnaði 55–60 fermetra íbúðir. Á höfuðborgarsvæðinu er meðalstærð íbúða fyrstu kaupenda 91 fermetri. Íslenskt ungt fólk kaupir því að jafnaði um 50% fleiri fermetra en jafnaldrar þess. Ástæðan er ekki sú að ungt fólk vilji stærri íbúðir. Litlar íbúðir eru einfaldlega ekki í boði. Það er afleiðing úrelts skipulags sem tekur ekki mið af lýðþróun og byggir fyrir fjölskyldusamsetningu ársins 1970, ekki ársins 2026 og framtíðarinnar. Í 70% kaupsamninga fyrstu kaupenda er aðeins einn kaupandi skráður. Samt eru aðeins um 10% íbúða í byggingu á höfuðborgarsvæðinu undir 60 fermetrum, og húsnæðisáætlanir sveitarfélaganna gera ráð fyrir að aðeins um 15% af þeim íbúðum sem fyrirhugað er að byggja á næstu fimm árum verði litlar. 6 þúsund lóðir fyrir 37 þúsund íbúðir Samkvæmt tölum frá október 2025 voru byggingarhæfar lóðir á höfuðborgarsvæðinu fyrir um 6 þúsund íbúðir. Sveitarfélögin sjálf, ásamt mati HMS á íbúðaskuld, segja að þörf sé á um 37 þúsund íbúðum á næstu tíu árum. Lóðirnar duga því aðeins fyrir lítinn hluta þarfarinnar. Vandinn liggur í forsendum vaxtarmarka höfuðborgarsvæðisins frá 2015. Innan þeirra ná sveitarfélögin ekki að útvega byggingarhæfar lóðir í því magni og á þeim tíma sem þarf. Þegar lóðir eru af skornum skammti hækkar verð fasteigna. Blindi blettur skipulagsins er öldrun þjóðarinnar Skipulagið telur íbúa en horfir fram hjá því hvernig þjóðin er að breytast. Árið 1970 bjuggu um fjórir í hverri íbúð en í dag um 2,4. Barnlausum heimilum og einmenningsheimilum fjölgar, og stefnir í að um 45% heimila verði einmenningsheimili árið 2040. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgar íbúum 65 ára og eldri úr um 37 þúsund í yfir 56 þúsund árið 2040, og um 60% heimila í þeim hópi eru einmenningsheimili. Íbúðaþörf næstu ára verður því að stórum hluta drifin áfram af eldra fólki. Eldra fólk og ungt fólk keppa um sömu íbúðirnar, en ekki á jöfnum forsendum. Fólk 65 ára og eldra er um 15% landsmanna en á um 60% af eigin fé þeirra. Unga fólkið á ekki möguleika í þeirri samkeppni. Verði byggt á sama hraða og undanfarin ár munu eldri borgarar búa í þriðju hverri íbúð á höfuðborgarsvæðinu árið 2040. Þetta er ekki gagnrýni á eldra fólk, sem á fullan rétt á húsnæði við hæfi. Þetta er gagnrýni á skipulag sem gerir ekki ráð fyrir báðum hópum. Með fleiri hentugum búsetukostum fyrir eldra fólk losna jafnframt stærri íbúðir fyrir fjölskyldur og samkeppni við fyrstu kaupendur um litlu íbúðirnar minnkar. Séreignarstefnan hefur fylgt íslensku samfélagi í áratugi. Spurningin er einföld: Viljum við að börnin okkar fái sömu tækifæri og við fengum til að eignast eigið heimili? Í næstu grein fjalla ég um hverjir bera kostnaðinn af stöðunni og hvað sveitarstjórnir þurfa að gera. Höfundur er framkvæmdastjóri Aflvaka þróunarfélags ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Stefánsson Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun