Skoðun

Hver pantaði börn með þessu ADHD?

Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar

Sama foreldrið og hefur eytt tíu mínútum í að leita að símanum sínum á meðan það er að tala í hann, hefur það verkefni að halda utan um heila fjölskyldu. Muna eftir íþróttatöskunni, fylgjast með skilaboðum frá skólanum, skipuleggja vikuna, halda utan um læknistíma, sjá til þess að allir fái að borða og helst halda ró sinni á meðan. Og auðvitað vera þolinmótt, skilningsríkt og alltaf með réttu uppeldisaðferðirnar á hreinu.

Hvað gæti mögulega farið úrskeiðis?

Við tölum mikið um börn með ADHD. Hvernig við getum stutt þau, hjálpað þeim með skipulag, tilfinningastjórnun, athygli og daglegar áskoranir. Og það er auðvitað mikilvægt.

En hvað með foreldrana? ADHD hverfur nefnilega ekki við átján ára aldur. Það fylgir okkur áfram inn í fullorðinsárin, atvinnulífið, samböndin og foreldrahlutverkið.

Og við fáum ekki betri stýrifærni í sængurgjöf þegar við eignumst börn.

Þegar ADHD mætir ADHD

Á heimilum þar sem bæði foreldri og barn eru með ADHD geta orðið ansi áhugaverðir árekstrar.

Barnið á erfitt með að skipta um verkefni. Foreldrið á erfitt með að bíða.

Barnið gleymir fyrirmælunum. Foreldrið gleymir að það var búið að gefa þau.

Barnið á erfitt með að stjórna tilfinningunum. Foreldrið er sjálft komið alveg að þolmörkum.

Og áður en maður veit af eru tveir einstaklingar, sem báðir þurfa stuðning við að stjórna viðbrögðum sínum, komnir í rökræður sem myndu sóma sig vel á Alþingi.

Það er auðvelt að sjá bara hegðun barnsins og hugsa að það þurfi að læra að hlusta betur, bíða eða sýna meiri sjálfstjórn. En hvað með foreldrið? Það þarf líka stuðning, skilning og stundum alveg sömu verkfærin og við erum að kenna barninu.

Þetta snýst ekki um að foreldrar eigi að sleppa því að setja mörk eða bera ábyrgð. Þvert á móti. Skýr mörk, góð tengsl og fyrirsjáanleiki skipta miklu máli. En við þurfum að finna leiðir sem bæði barnið og foreldrið ráða við að nota. Það er lítið gagn í fullkomnu skipulagi sem enginn á heimilinu nær að fylgja.

„Ég veit þetta alveg, en af hverju geri ég þetta ekki?“

Við vitum að það hjálpar að undirbúa morgnana kvöldið áður. Við vitum að það er betra að tala rólega við barnið en að kalla úr eldhúsinu í fimmta sinn. Við vitum að skýr fyrirmæli, fyrirsjáanleiki og góðar venjur geta gert daglegt líf auðveldara.

En svo er klukkan 7:45. Eitt barnið finnur ekki skóna sína, annað man allt í einu eftir einhverju sem átti að koma með í skólann. Nestisboxið er horfið, síminn hringir og þú ert að reyna að muna hvað það var sem þú ætlaðir að gera þegar þú gekkst inn í eldhús. Þú ert búin að lesa allt um jákvætt uppeldi, veist um mikilvægi þess að halda ró sinni, gefa skýr fyrirmæli og sýna þolinmæði.

En núna langar þig helst að öskra: „GETA ALLIR BARA FARIÐ Í SKÓNA SÍNA!“ Og það sem verra er, þú heyrir þig jafnvel gera það.

Þarna erum við komin að stýrifærni heilans. Stýrifærni er meðal annars það sem hjálpar okkur að skipuleggja, hefja verkefni, halda utan um upplýsingar, stjórna tilfinningum og stoppa okkur af áður en við bregðumst við.

Þetta eru einmitt þættir sem geta reynst fólki með ADHD erfiðir. Og þegar álagið eykst getur orðið enn erfiðara að nýta þessa færni. Það er því ekki endilega skortur á þekkingu eða vilja þegar foreldri nær ekki að nota aðferð sem það veit að virkar.

Stundum er einfaldlega allt kerfið komið í yfirvinnu. Og það er erfitt að halda ró sinni þegar eigin heilinn er kominn á yfirsnúning.

Það þarf ekki alltaf fleiri ráð

Eitt af því sem ég hef hugsað mikið um er hversu dugleg við erum að gefa foreldrum ráð.

Við kennum þeim að búa til sjónrænt skipulag, undirbúa breytingar, nota jákvæða styrkingu, velja baráttur og gefa skýr fyrirmæli. Allt eru þetta góðar og gagnlegar aðferðir. En hvað gerist þegar foreldrið er sjálft orðið svo þreytt og yfirhlaðið að það ræður varla við að halda utan um daginn? Þá getur enn einn listinn yfir það sem það ætti að gera orðið enn eitt verkefnið sem það nær ekki að klára. Í fræðum um nám fullorðinna er meðal annars fjallað um hvernig álag og sá kraftur sem fólk hefur til ráðstöfunar hafa áhrif á svigrúm þess til að læra og gera breytingar. Þetta finnst mér sérstaklega mikilvægt þegar við hugsum um foreldra með ADHD.

Stundum er besta ráðið ekki að bæta einhverju við heldur að taka eitthvað út. Fækka verkefnum. Einfalda morgnana. Setja færri markmið. Fá meiri stuðning. Velja eina breytingu í einu. Og stundum þarf einfaldlega að viðurkenna að heimilið þarf ekki að vera fullkomlega skipulagt til að vera gott heimili.

Börn þurfa ekki fullkomna foreldra

Það er auðvelt að verða upptekinn af því sem gengur ekki þegar ADHD er hluti af fjölskyldulífinu. Gleymdum tímum. Ókláruðum verkefnum. Of miklu tuði. Pirringi. Samviskubiti. En foreldrahlutverkið snýst ekki bara um skipulag og framkvæmd. Það snýst líka um tengsl. Að sjá barnið sitt. Hlusta á það. Sýna því áhuga. Geta viðurkennt þegar maður bregst ekki rétt við og reynt aftur. Það er ekkert foreldri alltaf rólegt og yfirvegað, hvort sem það er með ADHD eða ekki.

Það sem skiptir máli er ekki að gera aldrei mistök heldur hvað við gerum eftir þau. Við getum sagt við barnið: „Ég varð of pirruð/aður áðan og hefði átt að bregðast öðruvísi við. Fyrirgefðu.“ Það er ekki veikleikamerki. Það er líka leið til að kenna barninu að taka ábyrgð, sýna skilning og laga samskipti þegar eitthvað fer úrskeiðis. Og kannski er það einmitt ein mikilvægasta fyrirmyndin sem við getum verið.

Foreldrar þurfa líka að fá að vera manneskjur

Í umræðunni um ADHD og uppeldi megum við ekki gleyma foreldrunum sjálfum. Við getum ekki ætlast til þess að foreldri sem er undir stöðugu álagi sýni endalausa þolinmæði, skipulag og sjálfstjórn án þess að skoða hvaða stuðning það hefur. Það þarf líka að horfa á aðstæður fjölskyldunnar, álagið, samskiptin og þær kröfur sem gerðar eru til hennar. Foreldri með ADHD er ekki bara foreldri sem gleymir, frestar eða missir þolinmæðina. Það er líka manneskja með sína reynslu, styrkleika, þekkingu og væntumþykju.

Foreldrahlutverkið er krefjandi og mikilvægt að muna að sýna sjálfum sér mildi í gegnum það.

Höfundur er verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD samtökunum, grunnskólakennari og móðir með ADHD.




Skoðun

Sjá meira


×