Fótbolti

Óttast slitið krossband og gæti verið lengi frá

Andri Broddason skrifar
Khvicha Kvaratskhelia gat ekki stigið í fótinn þegar hann gekk af vellinum.
Khvicha Kvaratskhelia gat ekki stigið í fótinn þegar hann gekk af vellinum. Franco Arland/Getty Images

Evrópumeistarar PSG tóku á móti Barcelona í Meistaradeild Evrópu í gær. PSG náði að vinna leikinn 4-2 en liðið gerði það ekki áfallalaust. Khvicha Kvaratskhelia, leikmaður PSG, meiddist eftir um klukkutíma leik og þurfti að fara af velli.

Kvaratskhelia meiddist eftir samstuð við Xavi Espart, varnarmann Barcelona, og virtist leikmaður PSG vera sárþjáður. Hann fór af velli en átti erfitt með að stíga í fótinn og er því möguleiki að hann verði lengi frá.

Kvaratskhelia hefur verið mikilvægur leikmaður fyrir PSG síðan hann kom til liðsins frá Napoli en þjálfarar liðsins eru hræddir um það versta. Samkvæmt franska miðlinum L’Equipe er leikmaðurinn að fara í segulómun í dag þar sem komið verður í ljós hversu alvarleg meiðslin eru.

Strax eftir leik voru teknar myndir af fætinum af fæti Kvaratskhelia en óttast er að hann hafi slitið krossband við samstuðið. Það mun þó ekki koma í ljós fyrr en leikmaðurinn er búinn í myndatöku í dag.

Þetta er áfall fyrir PSG þar sem Kvaratskhelia er einn af miðpunktum í sókn PSG. Hann hefur byrjað fimm leiki fyrir PSG það sem af er tímabils og skorað eitt mark ásamt því að hafa gefið eina stoðsendingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×