Lífið

Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Annie Mist Þórsdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa báðar sigrað Crossfit-leikana og bjóða nú upp á æfingar og fræðslu fyrir mismunandi æviskeið kvenna.
Annie Mist Þórsdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa báðar sigrað Crossfit-leikana og bjóða nú upp á æfingar og fræðslu fyrir mismunandi æviskeið kvenna. Þóra Ólafs

Crossfit-stórstjörnurnar Annie Mist Þórsdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir hafa útbúið æfingakerfi sem er sérstaklega hannað fyrir konur yfir fertugt og tekur það meðal annars fyrir þær áskoranir sem geta fylgt breytingaskeiðinu.

Annie Mist og Katrín Tanja hafa báðar unnið Crossfit-heimsleikana tvisvar og eiga sömuleiðis báðar börn, þannig að þær þekkja vel hvernig það er að æfa í mismunandi líkamlegum aðstæðum. 

World Class og Empower by Dóttir, fyrirtæki Anniear og Katrínar, stóðu fyrir fræðandi konukvöldi í Laugum þar sem áhersla var lögð á heilsu kvenna, breytingaskeiðið og mikilvægi styrktarþjálfunar.

Annie Mist og Katrín Tanja leiddu kvöldið og fræddu gesti um þær breytingar sem verða á líkama kvenna með aldrinum, áhrif hormónabreytinga og hvernig markviss hreyfing og næring geta stutt við heilsu og vellíðan.

Í fréttatilkynningu segir:

„Á kvöldinu kynntu þær æfingakerfi sem er sérstaklega hannað fyrir konur 40 ára og eldri. Æfingakerfið leggur áherslu á styrktarþjálfun sem hjálpar konum að byggja upp og viðhalda vöðvamassa, styrkja beinin og auka orku og vellíðan. Markmiðið er að hvetja konur til að æfa með líkamanum, ekki gegn honum, og mæta breyttum þörfum hans á mismunandi æviskeiðum.

Gestir fengu einnig tækifæri til að spyrja spurninga og ræða við Annie Mist og Katrínu Tönju um þjálfun, næringu og þær áskoranir sem geta fylgt breytingaskeiðinu. Stefnt er að því að halda reglulega viðburði á vegum World Class og Empower by Dóttir. Markmiðið er að skapa vettvang þar sem konur geta sótt sér fræðslu, innblástur og hvatningu til að efla eigin heilsu og vellíðan.“

Hér má sjá vel valdar myndir frá kvöldinu:

Annie Mist og Katrín Tanja voru ánægðar með vel heppnað kvöld.Þóra Ólafs
Annie Mist, Katrín Tanja, Birgitta Líf og Anna Bergmann.Þóra Ólafs
Katrín Tanja vann heimsleikana í Crossfit árin 2015 og 2016.Þóra Ólafs
Annie Mist vann heimsleikana í Crossfit árin 2011 og 2012.Þóra Ólafs
Tvíeykið stendur fyrir æfingakerfinu Empower by Dóttir.Þóra Ólafs
Konur fengu tækifæri til að spyrja stelpurnar ýmissa spurninga.Þóra Ólafs
Katrín Tanja og Annie Mist fræddu gesti um þær breytingar sem verða á líkama kvenna með aldrinum.Þóra Ólafs
Annie Mist, Odda Helgadóttir móðir Katrínar Tönju og Katrín Tanja.Þóra Ólafs
Gleðin var í loftinu.Þóra Ólafs
World Class og Empower by Dóttir stefna á að halda fleiri fræðslukvöld.Þóra Ólafs
Gestir fylgdust einbeittir með.Þóra Ólafs
Nóg af veitingum.Þóra Ólafs
Katrín Tanja brosti breitt.Þóra Ólafs
Dóttir-skvísurnar í stuði.Þóra Ólafs





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.